Fara í efni

Álagningu fasteignagjalda 2020 lokið

18.01.2020

Allir greiðendur fasteignagjalda til sveitarfélagsins, einstaklingar og lögaðilar, geta nú nálgast álagningarseðla í Íbúagátt á heimasíðu sveitarfélagsins. Einnig er hægt að sækja álagningarseðla á vefsíðu island.is undir flipanum "Mínar síður".

Álagningarseðlar eru sendir á pappírsformi til þeirra greiðenda sem þess óskuðu. Greiðslukröfur vegna fasteignagjaldanna birtast í öllum heimabönkum og greiðsluseðlar sendir þeim sem óskað hafa eftir að fá þá heimsenda.

Við álagningu nú í janúar er reiknaður afsláttur á fasteignaskatt til bráðabirgða hjá elli- og örorkulífeyrisþegum og miðað er við tekjur ársins 2018.  Þegar álagningu 2020 vegna tekna ársins 2019 liggur fyrir í júní/júlí n.k. verður afslátturinn endanlega reiknaður og getur það leitt til inneignar eða skuldar eftir því sem við á.  Allar breytingar verða þá kynntar bréflega hverjum og einum.  Ekki er þörf á að sækja sérstaklega um þennan afslátt.

Nánari upplýsingar um álagninguna og innheimtu eru veittar á heimasíðu sveitarfélagsins, í síma 455 6000 eða í innheimta@skagafjordur.is