Fara í efni

Álagningu fasteignagjalda 2014 lokið

23.01.2014

Álagningu fasteignagjalda í Sveitarfélaginu Skagafirði árið 2014 er lokið. Allir greiðendur fasteignagjalda til sveitarfélagsins, einstaklingar og lögaðilar, geta nú nálgast álagningarseðla í Íbúagátt á heimasíðu sveitarfélagsins. Einnig er hægt að sækja álagningarseðla á vefsíðu island.is undir flipanum "Mínar síður".

Álagningarseðlar eru sendir á pappírsformi til þeirra greiðenda sem nýttu sér þennan möguleika árið 2013 og þeirra sem hafa bæst við síðan þá.
Greiðsluseðlar vegna fasteignagjaldanna birtast í öllum heimabönkum og sendir þeim sem óskað hafa eftir að fá þá heimsenda.

Við álagningu nú í janúar er reiknaður afsláttur á fasteignaskatt vegna elli- og örorkulífeyrisþega til bráðabirgða og miðað er við tekjur ársins 2012.  Þegar álagningu 2014 vegna tekna ársins 2013 liggur fyrir næsta haust verður afslátturinn endanlega reiknaður og getur það leitt til inneignar eða skuldar eftir því sem við á.  Allar breytingar verða þá kynntar bréflega hverjum og einum.  Ekki er þörf á að sækja sérstaklega um þennan afslátt.

Nánari upplýsingar um álagninguna og innheimtu eru veittar á heimasíðu sveitarfélagsins, í síma 455 6000 eða í innheimta@skagafjordur.is