Fara í efni

Álagning fasteignagjalda í Skagafirði árið 2026

08.01.2026

Vakin er athygli á því að álagning A-flokk lækkar úr 0,47% í 0,435% á milli ára. Í ljósi mikillar hækkunar á fasteignamati íbúða sem er 13,5% í Skagafirði milli áranna 2025 og 2026, er það mikið fagnaðarefni að með þessari lækkun álagningarstuðuls eru þau áhrif hækkunar lækkuð úr 13,5% í tæp 5% sem er áætluð hækkun vegins meðaltals launavísitölu og vísitölu neysluverðs. 

Þá er einnig vert að nefna að sorpgjöld vegna heimila og frístundahúsa lækka um 9% á milli áranna 2025 og 2026 þegar tekið hefur verið tillit til verðlagshækkana á verktakasamningi um sorphirðu í Skagafirði.

Álagningarseðlar

Álagningarseðlar fasteignagjalda verða ekki sendir bréfleiðis. Allir gjaldendur, lögaðilar og einstaklingar, geta nálgast rafræna útgáfu álagningarseðilsins í Íbúagátt á heimasíðu sveitarfélagsins og á vefsíðu island.is undir „Mínar síður“.


Gjalddagar

Gjalddagar fasteignagjaldanna verða tíu frá 1. febrúar til og með 1. nóvember 2026. Gjalddagaupplýsingar gjaldenda flytjast á milli ára. Sé álagning jöfn eða lægri en 28.000 kr. gjaldfellur öll álagningin 1. febrúar 2026.

Greiðslumátar
  • Beingreiðslur

Innheimtur greiddar með beingreiðslum af bankareikningum greiðenda. Íbúar eru beðnir um að hafa samband við þjónustufulltrúa í viðkomandi banka til að virkja þennan kost.

  • Boðgreiðslur

Tilkynna þarf til sveitarfélagsins ef óskað er eftir að greiða fasteignagjöld með kreditkorti. Þetta á einungis við einstaklinga sem eru í fyrsta sinn að óska eftir þessum greiðslumáta fasteignagjalda.

  • Greiðsluseðlar í tölvupósti

Greiðsluseðill er sendur í tölvupósti. Íbúar geta sent tölvupóst á netfangið innheimta@ skagafjordur.is ef óskað er eftir að fá þennan kost virkjaðan. Alla jafna eru greiðsluseðlar ekki sendir bréfleiðis. 


Ellilífeyrisþegar og örorkulífeyrisþegar

Lækkun fasteignaskatts á íbúðir tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega er reiknuð við álagningu til bráðabirgða og er stuðst við tekjur samkvæmt skattframtölum 2025 vegna tekna ársins 2024. Endanlegur útreikningur fer fram þegar álagningu 2026, vegna tekna ársins 2025 er lokið í júní n.k. Afslátturinn er hlutfallslegur að teknu tilliti til allra skattskyldra tekna skv. skattframtali 2025. Fullur afsláttur hækkar úr 90.000 kr. í 100.000 kr. Í upphafsálagningu verður hámarksafsláttur 50.000 kr. 

Ekki er þörf á að sækja um þennan afslátt.

Álagning - breytingar - innheimta

Þess er óskað að ábendingar um breytingar og leiðréttingar á álagningu eða innheimtu berist til sveitarfélagsins símleiðis í síma 455-6000 eða með tölvupósti á netfangið innheimta@skagafjordur.is.


Frekari upplýsingar

Tekið er á móti fyrirspurnum á netfangið innheimta@skagafjordur.is eða í síma 455-6000.