Fara í efni

Álagning fasteignagjalda í Skagafirði árið 2025

22.01.2025
Álagningarseðlar

Álagningarseðlar fasteignagjalda verða ekki sendir bréfleiðis. Allir gjaldendur, lögaðilar og einstaklingar, geta nálgast rafræna útgáfu álagningarseðilsins í Íbúagátt á heimasíðu sveitarfélagsins og á vefsíðu island.is undir „Mínar síður“.


Gjalddagar

Gjalddagar fasteignagjaldanna verða tíu frá 1. febrúar til og með 1. nóvember 2025. Gjalddagaupplýsingar gjaldenda flytjast á milli ára. Sé álagning jöfn eða lægri en 28.000 kr. gjaldfellur öll álagningin 1. febrúar 2025.


Greiðslumátar
Beingreiðslur

Innheimtur greiddar með beingreiðslum af bankareikningum greiðenda. Vinsamlegast hafið samband við þjónustufulltrúa í viðkomandi banka til að virkja þennan kost.

Boðgreiðslur

Tilkynna þarf til sveitarfélagsins ef óskað er eftir að greiða fasteignagjöld með kreditkorti. Þetta á einungis við þá sem eru í fyrsta sinn að óska eftir þessum greiðslumáta fasteignagjalda. 

Greiðsluseðlar í tölvupósti

Greiðsluseðill sendur í tölvupósti. Sendið tölvupóst á netfangið innheimta@ skagafjordur.is  ef óskað er eftir að fá þennan kost virkjaðan. Alla jafna eru greiðsluseðlar ekki sendir bréfleiðis. Hvatt er til þess að nota tölvupóstinn.


Ellilífeyrisþegar og örorkulífeyrisþegar

Lækkun fasteignaskatts á íbúðir tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega er reiknuð við álagningu til bráðabirgða og er stuðst við tekjur samkvæmt skattframtölum 2024 vegna tekna ársins 2023. Endanlegur útreikningur fer fram þegar álagningu 2025, vegna tekna ársins 2024 er lokið í júní n.k. Afslátturinn er hlutfallslegur að teknu tilliti til allra skattskyldra tekna skv. skattframtali 2025. Ekki er þörf á að sækja um þennan afslátt.

 
Álagning - breytingar - innheimta

Þess er óskað að ábendingar um breytingar og leiðréttingar á álagningu eða innheimtu berist til sveitarfélagsins símleiðis í síma 455 6000 eða með tölvupósti á netfangið innheimta@skagafjordur.is. 


Frekari upplýsingar

Tekið er á móti fyrirspurnum á netfangið innheimta@skagafjordur.is eða í síma 455 6000.