Fara í efni

Álagningu fasteignagjalda 2023 lokið

01.02.2023

Allir greiðendur fasteignagjalda til sveitarfélagsins, einstaklingar og lögaðilar, geta nú nálgast álagningarseðla í Íbúagátt á heimasíðu sveitarfélagsins. Einnig er hægt að sækja álagningarseðla á vefsíðu island.is undir flipanum "Mínar síður".

Álagningarseðlar eru sendir á pappírsformi til þeirra greiðenda sem þess óskuðu. Greiðslukröfur vegna fasteignagjaldanna birtast í öllum heimabönkum og greiðsluseðlar sendir þeim sem óskað hafa eftir að fá þá heimsenda.

Þann 1. apríl 2023 mun ný gjaldskrá taka gildi vegna sorps, í framhaldi af því að nýr þjónustuaðili tekur við þjónustunni í sveitarfélaginu og flokkunarílátum fjölgað. Gjaldendum verður gefinn kostur á því að velja samsetningu íláta, þ.e. rúmmálsstærð og greiða samkvæmt því.

Við álagningu nú í janúar er reiknaður afsláttur á fasteignaskatt til bráðabirgða hjá elli- og örorkulífeyrisþegum og miðað er við tekjur ársins 2021. Þegar álagning 2023 vegna tekna ársins 2022 liggur fyrir í júní/júlí n.k. verður afslátturinn endanlega reiknaður og getur það leitt til inneignar eða skuldar eftir því sem við á. Allar breytingar verða þá kynntar bréflega hverjum og einum. Ekki er þörf á að sækja sérstaklega um þennan afslátt.

Nánari upplýsingar um álagninguna og innheimtu eru veittar á heimasíðu sveitarfélagsins, í síma 455 6000 eða í innheimta@skagafjordur.is