Fara í efni

Áhaldahúsið á Borgarteigi tekið í notkun

14.09.2026

Gaman er að greina frá því að nýja áhaldahúsið á Borgarteigi er nú tilbúið til notkunar og flutningar hafnir. Áhaldahúsið er mikilvægur liður í uppbyggingu þjónustu- og rekstraraðstöðu Veitu- og framkvæmdasviðs Skagafjarðar, en með nýja húsnæðinu hefur starfsemi Þjónustumiðstöðvar, Eignasjóðs og Skagafjarðarveitna verið sameinuð á sama stað. Það er óhætt að segja að með húsnæðinu skapist betri aðstaða fyrir starfsfólk og daglega umsýslu þeirra verkefna sem tengjast rekstri innviða sveitarfélagsins.

Framkvæmdir hófust í september 2025 og í júní 2026 var húsið formlega afhent sveitarfélaginu. Byggingin sjálf er límtréshús, þar sem burðarvirkið er úr límtré, og útveggir og þak eru klædd með yleiningum. Gólfflöturinn er rúmlega 800 m2 og með mikilli lofthæð sem nýtist vel fyrir lager og möguleika á að bæta við millilofti.

Líkt og fyrr segir er flutningur hafinn og áætlað er að hann klárist á næstu haustdögum.