Afreksíþróttasjóður ungmenna í Skagafirði auglýsir eftir umsóknum
Auglýst er eftir umsóknum vegna sjóðsúthlutunar fyrir árið 2024. Í reglunum segir:
„Styrkurinn er ætlaður þeim sem taka þátt í landsliðsverkefnum eða öðru sem jafna má við þátttöku í þeim að mati sérstakrar úthlutunarnefndar, enda hafi slík þátttaka í för með sér veruleg útgjöld þátttakenda og forráðamanna þeirra.“
„Hver einstaklingur getur sótt um styrk að hámarki tvisvar á ári. Styrkupphæð er kr. 25.000.- fyrir hverja ferð sem farin er.“
„Skilyrði fyrir úthlutun er að umsækjendur eigi lögheimili í Skagafirði og stundi íþrótt sína á vegum aðildarfélaga UMSS. Sé viðkomandi grein ekki stunduð innan aðildarfélaga UMSS skal umsókn metin sérstaklega.“
Umsókn, með greinagerð, skal senda á frístundastjóra á póstfangið valdi@skagafjordur.is fyrir 15. desember 2024.