Fara í efni

Afhending lykla að félagsheimilinu Bifröst

08.01.2026

Í vikunni fór fram formleg afhending lykla að félagsheimilinu Bifröst. Líkt og Skagfirðingar vita hafa þau hjónin Bára Jónsdóttir og Sigurbjörn Björnsson, ásamt fjölskyldu sinni, staðið vaktina af mikilli alúð í rúm 20 ár. Framlag þeirra til menningarlífs í sveitarfélaginu hefur verið ómetanlegt og óhætt er að segja að þau hafi sett sinn svip á félagslíf íbúa og gesta undanfarna áratugi. Fyrir það ber að færa þeim innilegar þakkir og óskar sveitarfélagið þeim hjónum og fjölskyldu alls hins besta í því sem þau taka sér fyrir.

Á komandi vikum taka nýir rekstraraðilar við keflinu og verður það auglýst nánar síðar.

 

 

 

 

Mynd: Sigfús Ingi Sigfússon, Sigurbjörn Björnsson, Bára Jónsdóttir, Helga Sigurbjörnsdóttir og Ragnar Helgason