Fara í efni

Aðventuhátíð 2026 - dagskrá

20.11.2026

Aðventuhátíð Skagafjarðar 2026

Laugardagur 28. nóvember

Tímasetning Staðsetning Heiti Lýsing
09:30 Litli-Skógur Vasaljósaganga með jólaívafi

Gengið verður frá Sauðárhlíð í gegnum Litla-Skóg þar sem sagðar verða sögur af jólasveinunum 13. Hver veit nema einn og einn jólasveinn láti sjá sig í skóginum.

Í húsinu verður boðið upp á smákökur, kakó og sykurpúða að göngunni lokinni.

Nauðsynlegt er að hafa með sér vasaljós.

10:30 - 14:00 Bókasafnið á Sauðárkróki Jólaföndur Gestir og gangandi geta litið við og gert músastiga og perlað skraut á jólatré.
12:00 - 14:00 Íþróttahúsið á Sauðárkróki Jólahlaðborð Rótarýklúbbs Sauðárkróks Hið árlega og vinsæla jólahlaðborð Rótarýklúbbsins verður á sínum stað.
13:00 Bifröst Jólabíó

Sveitarfélagið býður íbúum í bíó á fjölskyldumyndin Galdraríkið Hexe. Myndin verður sýnd með íslensku tali.

Nauðsynlegt er að ná sér í miða á heimasíðunni 550bifrost.com.

16:00 Kirkjutorgið á Sauðárkróki Tendrun jólatrés

Grýla og Leppalúði mæta á svæðið og sjá til þess að það vanti ekki fjörið.

Börnin úr leiksýningu Bláa hnattarins stíga á svið og barna- og unglingakór Skagafjarðar flytur falleg jólalög.

Regína Ósk Óskarsdóttir lokar hátíðinni og syngur inn í jólin.

Jólasveinarnir koma til byggða.

    Jólafjör í sundlaugum Skagafjarðar

Sveitarfélagið býður íbúum og gestum frítt í sund í tilefni dagsins.
Jólalög munu óma yfir daginn.
Opnunartími sundlaugar:

  • 10:00 – 16:00 – Sauðárkrókur
  • 11:00-16:00 – Hofsós
  • 10:00-16:00 - Varmahlíð
       

 

Sunnudagur 29. Nóvember

Tímasetning Staðsetning Heiti Lýsing
15:00 – 17:00 Glaumbær Rökkurganga í Glaumbæ Ókeypis verður á safnið meðan á viðburðinum stendur kl. 15:00-17:00. Íbúar og gestir hvött til að mæta með góða skapið og vasaljós.