Fara í efni

Aðsókn í sundlaugar jókst þegar líða tók á sumarið

11.10.2021

Aðsókn í sundlaugarnar s.l. sumar var fremur dræm framan af sumri en það glæddist til þegar á leið og var +7,2% í ágúst samanborið við árið áður. Tilfinning starfsmanna var að færri Íslendingar hafi verið á ferðinni en í fyrra og aukningin sem varð seinni part sumars megi rekja til fjölgunar erlendra ferðamanna eftir tilslakanir á landamærum. Aðsókn í september var einnig mjög góð miðað við síðasta ár, þar sem mun fleiri erlendir ferðamenn virðast hafa verið á svæðinu miðað við september í fyrra.

Covid-19 hefur augljóslega haft talsverð áhrif á aðsókn síðustu tvö sumur og þá sér í lagi á Hofsósi sem reiðir sig mikið að aðsókn erlendra gesta, þó að aðsóknin í fyrra hafi verið með ágætum, þökk sé innlendum ferðamönnum.