Fara í efni

Aðgangur að fjarfundi fyrir starfsmenn sveitarfélagsins

12.12.2023

Eins og áður hefur verið tilkynnt verður starfsmannafundur fyrir starfsmenn sveitarfélagsins Skagafjarðar haldinn í dag, þriðjudaginn 12. desember kl 15:00 í Háa salnum við Aðalgötu 21 á Sauðárkróki. Fundinum verður jafnframt streymt á Teams og upptaka gerð aðgengileg eftir fundinn.

Á fundinum mun Haraldur Líndal Haraldsson kynna niðurstöður úttektar á stjórnsýslu, rekstri og fjármálum sveitarfélagsins Skagafjarðar og tillögur sem miða að því að bæta framangreinda þætti, þjónustu og starfsumhverfi starfsmanna sveitarfélagsins.

Við hvetjum alla starfsmenn sveitarfélagsins til að mæta og kynna sér niðurstöður úttektarinnar.

Til að tengjast streymi skannið eftirfarandi QR kóða eða smellið á þessa slóð: Click here to join the meeting