Ábending til hunda- og kattaeigenda
22.04.2026
Vakin er athygli á því að varptími fugla er hafinn og eru hunda- og kattaeigendur beðnir um að taka tillit til þess.
Æskilegt er að halda köttum sínum innandyra á nóttunni og hengja bjöllur á hálsólar þeirra. Kettir geta haft neikvæð áhrif á stofn fugla sem verpa í nágrenni við mannabústaði ár hvert og því er mikilvægt að kattaeigendur fylgist með köttum sínum á þessum árstíma og á meðan ungar eru að verða fleygir.
Að sama skapi eru hundaeigendur beðnir um að sleppa ekki hundum sínum lausum á varpsvæðum.
Áhugasömum er bent á að kynna sér samþykkt um hunda- og kattahald í Sveitarfélaginu Skagafirði sem finna má hér.