Fara í efni

Ábending til eigenda ökutækja og annarra muna á lóðum sveitarfélagsins

12.08.2026

Sveitarfélagið vill vekja athygli á því að víða á lóðum Skagafjarðar eru bílar, kerrur, ferðavagnar og aðrir munir sem seinka og/eða koma í veg fyrir reglubundna umhirðu svæðanna. Þetta á við alla þéttbýliskjarna í sveitarfélaginu.

Garðyrkjudeildin og þjónustumiðstöðin komast í sumum tilvikum ekki að til að slá gras eða sinna nauðsynlegu viðhaldi vegna þessa, sem er hvimleitt. Eigendur eru því vinsamlegast beðnir um að fjarlægja bíla, kerrur og aðra muni hið fyrsta og þess í stað staðsetja tækin á sínum einkalóðum eða á skilgreindum geymslusvæðum.

Vakin er athygli á því að eigendur sem ekki fjarlægja ökutæki eða aðra lausamuni geta átt von á því að það verði fjarlægt á kostnað eigenda.

Sveitarfélagið þakkar fyrir góð viðbrögð og samstarf við að halda lóðum sveitarfélagsins snyrtilegum og aðgengilegum.