Fara í efni

Unglinglandsmót UMFÍ 2026

Unglingalandsmót UMFÍ hefur verið órjúfanlegur hluti af verslunarmannahelginni frá árinu 1992. Mótið er vímulaus fjölskyldu- og íþróttahátíð þar sem börn og ungmenni á aldrinum 11–18 ára taka þátt í fjölmörgum íþróttagreinum, skapa nýjar minningar og njóta samverunnar með fjölskyldu og vinum. Samhliða keppninni er boðið upp á fjölbreytta afþreyingu, leiki, skemmtun og lifandi stemningu fyrir alla fjölskylduna alla helgina.

Í ár fer mótið fram á Sauðárkróki. Keppnissvæðin eru flest staðsett í hjarta bæjarins og tjaldsvæðið á Nöfunum er rétt ofan við íþróttasvæðið. Það gerir upplifunina þægilega fyrir fjölskyldur og þátttakendur – þegar komið er á Krókinn er einfaldlega hægt að leggja bílnum og ganga á milli viðburða, keppnissvæða og afþreyingar alla helgina.

Á Sauðárkróki búa um 2.800 manns og bærinn er þekktur fyrir öflugt samfélag og mikla íþróttamenningu. Þar er fyrsta flokks aðstaða til íþróttaiðkunar, meðal annars íþróttahús, frjálsíþróttavöllur, gras- og gervigrasvellir, hestaíþróttasvæði, golfvöllur, motocrossbraut og glæsileg 25 metra sundlaug.

Skráning keppenda fer fram hér https://www.abler.io/shop/umfi