Fara í efni

Unglingalandsmót UMFÍ

Unglingalandsmót UMFÍ hafa verið haldin frá árinu 1992. Mótin er fjölskylduhátíð þar sem börn og ungmenni á aldrinum 11 - 18 ára reyna með sér í fjölmörgum íþróttagreinum en samhliða er boðið upp á fjölbreytta afþreyingu, leiki og skemmtun fyrir alla fjölskylduna.

Unglingalandsmótin hafa hvarvetna vakið mikla athygli og þeir fjölmörgu sem þau hafa sótt hafa verið öðrum til mikillar fyrirmyndar með allri framkomu sem er í keppni eða leik. Á Unglingalandsmóti UMFÍ koma þúsundir gesta ár hvert, þáttakendur og forráðamenn þeirra. Vinir og vandamenn sem vilja taka saman þátt í skemmtilegu móti.

Unglingalandsmót UMFÍ fer fram um verslunarmannahelgina, 3.- 6. ágúst 2023 á Sauðárkróki í samstarfi við Ungmennasamband Skagafjarðar og sveitarfélagið Skagafjörð.