Opin vinnustofa skipulagsnefndar Skagafjarðar
24. október kl. 16:00-18:00
Ýmislegt
Boðskort
Skipulagsnefnd Skagafjarðar hyggst halda opna vinnustofu vegna frekari hönnunar og hugmyndavinnu fyrir deiliskipulag „Athafnarsvæði á Sauðárkróki AT-403“ fimmtudaginn 24. október næstkomandi frá kl. 16:00- 18:00.
Við hvetjum ykkur eindregið til að taka daginn frá!
Skipulagslýsing fyrir svæðið var auglýst 26.06.2024 – 14.08.2024, sjá nánar undir máli nr. 808/2024 á vef Skipulagsgáttarinnar (https://skipulagsgatt.is/issues/2024/808).
Næsta skref í skipulagsferlinu er vinnslutillaga og okkur langar að bjóða öllum sem vilja að koma og hitta okkur til að fá fram hvaða áherslur og þarfir almenningur og fyrirtæki/stofnanir sjá fyrir sér á umræddu skipulagssvæði.
Staðseting vinnustofunnar verður auglýst þegar að nær dregur.