Fara í efni

LITALAND - Leikhópurinn Lotta á Sauðárkróki

Leikhópurinn Lotta fagnar tuttugu ára afmæli í ár og setur af því tilefni upp söngleikinn Litaland um allt land í sumar! Eins og alltaf býður hópurinn upp á skemmtun fyrir alla fjölskylduna þar sem saman koma söngur, gleði, dans og húmor fyrir unga sem aldna. Sýningaplan sumarsins má finna á www.leikhopurinnlotta.is.

 

Sýningin er um klukkustund að lengd og fer fram utandyra. Við hvetjum gesti til að klæða sig eftir veðri, taka með sér nesti, teppi og góðan ævintýraanda. Einnig er gott að hafa símann vel hlaðinn, því að sýningu lokinni gefst áhorfendum kostur á að taka mynd með sinni uppáhalds ævintýrapersónu.

 

Miðaverð er 4.900 kr. (frítt fyrir tveggja ára og yngri) og hægt er að kaupa miða á staðnum og á tix.is.

 

Viðskiptavinir í Stofni hjá Sjóvá fá 2 miða á verði 1.

 

Hlökkum til að sjá ykkur!

________________________________________

 

Um sýninguna

 

Litaland segir frá grunnlitunum gulum, rauðum og bláum – eða Gulverjum, Rauðingjum og Bláungum. Hver litur byggir sinn eigin heim í Litalandi og í upphafi eru samskipti milli heimanna lítil, enda vill hver litur halda sig út af fyrir sig.

 

Fljótlega dregur þó til tíðinda. Bláungar neyðast til að leita skjóls hjá Gulverjum í Gulheimum, þar sem heimur þeirra bláu er að hverfa og þeir standa eftir án samastaðar. Sú viðkvæma staða leiðir til spennandi og ófyrirsjáanlegrar framvindu.

 

Í Rauðheimum virðist allt á yfirborðinu vera með felldu. Þar undirbúa Rauðingjar komu nýs litar sem væntanlegur er í hópinn. Rjóð, móðir hans, er þó treg til að segja frá því hver faðirinn er… Kannski hefur einhver litablöndun átt sér stað í Rauðheimum?

 

________________________________________

 

Aðstandendur

 

Leikstjórn: Sigsteinn Sigurbergsson & Þórunn Lárusdóttir

Leikskáld: Anna Bergljót Thorarensen

 

Leikarar: Andrea Ösp Karlsdóttir, Anna Bergljót Thorarensen, Rósa Ásgeirsdóttir, Stefán Benedikt Vilhelmsson & Sumarliði V Snæland Ingimarsson

 

Höfundar tónlistar: Baldur Ragnarsson, Björn Thorarensen, Rósa Ásgeirsdóttir, Þórður Gunnar Þorvaldsson

Höfundar lagatexta: Sævar Sigurgeirsson & Baldur Ragnarsson

Hljóðblöndun: Þórður Gunnar Þorvaldsson

 

Búningahönnun: Aldís Gyða Davíðsdóttir, Rósa Ásgeirsdóttir, Ídris R. Berman

Leikmyndahönnun: Andrea Ösp Karlsdóttir og Sigsteinn Sigurbergsson

Leikmunir: Leikhópurinn

 

Andrea Ösp Karlsdóttir - Bál, Litli Litur, Hafdís

Anna Bergljót Thorarensen - Glódís, Ástrós, Marín

Rósa Ásgeirsdóttir - Rjóð, Aldin, Særún

Sumarliði V Snæland Ingimarsson - Geisli, Blær, Hjörtur þjónn

Stefán Benedikt Vilhelmsson - Afi gamli, Rósmundur