Fara í efni

Íþróttahátíð Árskóla

Föstudaginn 14. febrúar verður hin árlega íþróttahátíð haldin í Árskóla. Allir nemendur mæta í skólann kl. 8:10 og skóladegi lýkur um kl. 12:30. Ekki er þörf á námsgögnum, en íþróttaskór gætu komið sér vel. Nemendur fara fyrst með sínum umsjónarkennara í bekkjarstofu.

Dagskráin hefst kl. 8:25 í íþróttahúsinu og lýkur u.þ.b. kl. 12:30. Léttur „heilsubiti“ í boði skólans er kl. 10:10. Að dagskrá lokinni gefst nemendum sem skráðir eru í mat tækifæri til að snæða hádegisverð.  

Að loknum hádegisverði tekur Árvist við nemendum yngsta stigs sem skráðir eru í vistun.

Foreldrar og aðrir velunnarar velkomnir!

Dagskrá í sal verður birt á vefsíðu skólans (arskoli.is)