Bjórhátíð á Hólum
31. maí kl. 15:00-19:00
Hátíðahöld
Hólar í Hjaltadal
Einn eftirmiðdag í júní raða bruggmeistarar sér upp í gamla leikfimisal hólaskóla og bjóða gestum að bragða afurðir sínar. Fyrir utan hafa heimamenn reist sölubása og selja mat sem enginn verður svikinn af. Búið er að tjalda yfir borð og bekki þar sem gestir njóta matar síns. Í biskupsgarðinum fer Kútarallið fram.
Gestir kjósa uppáhalds bjórinn sinn á hátíðinni og gildir hver aðgöngumiði sem þrjú atkvæði. Á aðgöngumiðanum er líka happanúmer sem hugsanlegt er að verði dregið út í happadrættinu. Glæsilegir vinningar í boði t.d. einn dagur sem aðstoðarmaður í brugghúsi Bjórseturs Íslands á Hólum.