Fara í efni

70 ára afmælistónleikar Óskars Péturssonar

Óskar Pétursson 70 ára
Óskar Pétursson Álftagerðisbróðir á að baki langan og farsælan feril sem söngvari og
skemmtikraftur. Bæði einn og óstuddur og einnig sem órjúfanlegur hluti hinna
goðsagnarkenndu Álftagerðisbræðra.
Það verður enginn svikinn af glæsilegum tónleikum Óskars, en hann kemur fram í Miðgarði þann
12. október nk.
Óskar verður ekki einn á ferð því bræður hans frá Álftagerði, þeir Pétur og Gísli, munu að ekki láta
sitt eftir liggja og mæta í öllu sínu veldi.
Auk bræðranna mun Guðrún Gunnarsdóttir láta ljós sitt skína að ógleymdu bestu sonum
Skagafjarðar í Karlakórnum Heimi undir styrkri stjórn Stefáns R. Gíslasonar.

Hljómsveit undir stjórn Valmar Väljaots.

Söngur:
Óskar Pétursson

Guðrún Gunnarsdóttir

Álftagerðisbræðurnir
Pétur Pétursson
Gísli Pétursson

Karlakórinn Heimir

Ívar Helgason
Hljóðmeistari: Gunnar Sigurbjörns

Miðasala á tix.is, Hótel Varmahlíð og N1 Sauðárkróki.