Fara í efni

Fréttir

Hrekkjavaka í Glaumbæ!

28.10.2024
Það verður hryllilega gaman í Glaumbæ föstudaginn 1. nóvember frá kl. 17-20! Sýningarnar í gamla bænum taka á sig skuggalega mynd og Miklabæjar-Sólveig og fleiri fara á stjá. Draugasögur verða sagðar í baðstofunni. Í Áshúsi verður vinnustofa og föndur fyrir alla fjölskylduna þar sem verður m.a. hægt að skera út grasker og rófur. Í kaffihúsinu...

Opin vinnustofa um athafnarsvæði á Sauðárkróki haldin í Ljósheimum í dag kl. 16

24.10.2024
Við vekjum athygli á opinni vinnustofu Skipulagsnefndar Skagafjarðar í dag vegna frekari hönnunar og hugmyndavinnu fyrir deiliskipulag „Athafnarsvæði á Sauðárkróki AT-403.“ Vinnustofan fer fram í Ljósheimum frá kl. 16:00- 18:00 í dag. Skipulagslýsing fyrir svæðið var auglýst 26.06.2024 – 14.08.2024, sjá nánar undir máli nr. 808/2024 á vef...

Torfarfurinn - Málþing 8. nóvember 2024

24.10.2024
Fjallað verður um torfarfinn frá ýmsum hliðum á málþingi í Kakalaskála í Skagafirði þann 8. nóvember næstkomandi, frá kl. 11 – 15. Málþingið er tileinkað Sigríði Sigurðardóttur í tilefni af stórafmæli hennar en hún varð sjötug á dögunum. Torfarfurinn hefur löngum verið Sirrí hugleikinn en auk þess að koma á fót Fornverkaskólanum þá hefur hún...

Tilkynning frá Skagafjarðarveitum til þeirra sem eru með hitaveitumæla

23.10.2024
Reikningar sem gefnir voru út nú í október eru uppgjörsreikningar með álestratímabili 18./19. september til 15./16. október og sýna því raunnotkun á því tímabili. Hér eftir mun gilda sú meginregla að hitaveitureikningar byggja á raunálestri. Álesturinn fer þannig fram að starfsmenn Skagafjarðarveitna keyra um fjörðinn og þar til gert app í...

Næsti fundur sveitarstjórnar verður haldinn miðvikudaginn 23. október

21.10.2024
31. fundur sveitarstjórnar Skagafjarðar verður haldinn að Sæmundargötu 7a, miðvikudaginn 23. október 2024 og hefst kl. 16:15. Dagskrá: Fundargerð 1. 2409011F - Byggðarráð Skagafjarðar - 1131.1 2406128 - Rekstrarsamningur við skíðadeild 20241.2 2310242 - Beiðni um kostnaðarþátttöku vegna endurnýjunar kirkjugarðsgirðingar1.3 2308167 -...

Birkimelur í Varmahlíð, íbúðarhúsalóðir til úthlutunar

16.10.2024
Birkimelur nr. 29, 31, 33, 35, 50, 52 og 54 – einbýlishúsalóðir Birkimelur nr. 13-15, 17-19 og 21-23 – parhúsalóðir Birkimelur nr. 34-40 og 42-48 – raðhúsalóðir Fyrir liggur staðfest deiliskipulag fyrir Birkimel í Varmahlíð með tíu einbýlishúsalóðum, tveimur raðhúsalóðum og þremur parhúsalóðum. Skipulagsnefnd Skagafjarðar auglýsir til...

Heitu pottarnir lokaðir í Sundlaug Sauðárkróks í dag

14.10.2024
Vegna framkvæmda við Sundlaug Sauðárkróks verða heitu pottarnir lokaðir í dag, mánudaginn 14. október. Uppfært kl. 15.10: Búið er að opna heitu pottana á ný.

Tilkynning til allra sem vinna með veitu- eða tengibrunna

11.10.2024
Sveitarfélagið Skagafjörður biðlar til allra sem vinna með hverskonar veitu- eða tengibrunna, að ganga þannig frá brunnunum að ekki stafi hætta af, hvorki mönnum né dýrum.

Losun garðúrgangs - Umgengni við jarðvegstipp

09.10.2024
Af gefnu tilefni er ítrekað að jarðvegstippurinn sunnan við leikskólann Ársali á Sauðárkróki er einungis ætlaður til að losa sig við jarðveg, garðaúrgang og smærri greinar. Steypuúrgangur og stórar greinar eiga að fara í gryfjurnar við Gránumóa og annað sorp á sorpmóttökustöðvar. Ef komið er með garðaúrganginn í plastpokum á að losa úr pokunum og...