Í tilefni 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna á Íslandi verður hátíðarsamkoma í íþróttahúsinu á Sauðárkróki föstudaginn 19. júní og hefst kl 14. Ávörp og tónlistaratriði , kaffiveitingar á eftir í matsal Árskóla.
Allir velkomnir jafnt konur sem karlar !
Sveitarfélagið hlaut nú á dögunum viðurkenningarskjal fyrir þátttöku sinna stofnana í Comeníusarverkefninu. Markmið þess var að auka samfellu í skóladegi elstu barna leikskóla og yngstu barna grunnskóla. Samstarfsaðili var Odense Kommune í Danmörku.
Þann 13. maí síðastliðinn samþykkti sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar deiliskipulag Gönguskarðsárvirkjunar þ.e. aðrennslislögn, nýtt stöðvarhús og þrýstivatnsturn.