Landsmótið er fjögurra daga íþróttaveisla á Sauðárkróki dagana 12. - 15. júlí 2018. Íþróttir og hreyfing verða í aðalhlutverki á daginn. Á kvöldin verður skemmtun og samvera í góðum félagsskap allsráðandi.
Allir 18 ára og eldri geta skráð sig, hvort sem þeir eru í íþrótta- og ungmennafélagi eða ekki. Að sjálfsögðu verður margt í boði fyrir...
Sveitarfélagið Skagafjörður er framsækið og metnaðarfullt samfélag. Kraftmikið atvinnulíf, góðir skólar á öllum skólastigum, fjölbreytt þjónusta, öflugt íþróttalíf, auðugt félags- og menningarlíf, veðursæld og mikil náttúrufegurð er á meðal þess sem gerir Skagafjörð að fýsilegum búsetukosti.
Í dag var síðasti starfsdagur Sigríðar Sigurðardóttur safnstjóra Byggðasafns Skagfirðinga sem lætur nú af störfum eftir rúmlega 30 ára farsælt starf hjá safninu.
Það verður margt og mikið um að vera á Hofsósi um helgina á bæjarhátíðinni Hofsós Heim. Dagskrá hátíðarinnar verður hin glæsilegasta.
Á föstudaginn verður m.a. boðið upp á gönguferð í Grafarós, diskósund, varðeld, kjötsúpu og dansleiki með Geirmundi Valtýssyni í Sólvík og Hvanndalsbræðrum í Höfðaborg. Á laugardaginn verður útijóga, mennskt...
Ráðherrafundur Fríverslunarsamtaka Evrópu, EFTA, er haldinn í Skagafirði í dag. Þar funda fulltrúar aðildarríkjanna Íslands, Liechtenstein, Noregs og Sviss undir forystu Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra.