Fara í efni

Tilkynning ǀ Sumarlokun Ráðhúss Skagafjarðar

17.07.2026

Vakin er athygli á því að afgreiðsla Ráðhúss Skagafjarðar verður lokuð vegna sumarleyfa frá og með 27. júlí. Afgreiðslan opnar aftur kl. 10:00, mánudaginn 10. ágúst.

Á meðan á lokun stendur verður ekki hægt að sækja þjónustu á staðnum, en bent er á að hægt er að nálgast ýmsa rafræna þjónustu á heimasíðu sveitarfélagsins og senda erindi á netfangið skagafjordur@skagafjordur.is.

Sveitarfélagið biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og óskar íbúum góðs sumarfrís.