Tilkynning I Grunur um mengun í Sauðá á Sauðárkróki
28.07.2026
Sveitarfélaginu hefur borist tilkynning um að efni hafi komist í Sauðá og berist nú niður með ánni. Málið er litið mjög alvarlegum augum og hefur verið tilkynnt til eftirlitsaðila, sem vinna nú að því að kanna umfang og eðli málsins.
Á meðan rannsókn stendur yfir eru íbúar og aðrir gestir sem eiga leið um svæðið hvött til að sýna aðgát og forðast snertingu við vatnið þar til frekari upplýsingar liggja fyrir.
Ef einhverjir hafa upplýsingar sem kunna að varpa ljósi á málið eru þeir beðnir um að hafa samband við Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra í síma 453-5400 eða á netfangið hnv@hnv.is.