Fara í efni

Nýir leiðtogar ráðnir á fjölskyldusvið Skagafjarðar

20.07.2026

Skagafjörður hefur lokið ráðningum í tvær mikilvægar leiðtogastöður á fjölskyldusviði sveitarfélagsins. Álfhildur Leifsdóttir hefur verið ráðin leiðtogi fræðslumála og Auður Inga Ingimarsdóttir hefur verið ráðin leiðtogi málefna fatlaðs fólks og eldra fólks.

Álfhildur Leifsdóttir leiðtogi fræðslumála

Álfhildur hefur víðtæka reynslu af menntamálum, skólaþróun og opinberri stjórnsýslu. Hún hefur starfað í Árskóla frá árinu 2009, fyrst sem kennari og síðar sem verkefnastjóri og kennsluráðgjafi. Þar hefur hún leitt fjölmörg þróunarverkefni, komið að innleiðingu nýrrar tækni í skólastarfi og stutt við faglega þróun kennara og stjórnenda.

Álfhildur hefur jafnframt gegnt fjölmörgum trúnaðar- og stjórnunarstörfum á vettvangi sveitarfélaga og menntamála, meðal annars sem formaður Kennarasambands Norðurlands vestra, fulltrúi í fræðslumálanefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga og sveitarstjórnarfulltrúi í Skagafirði. Hún hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir störf sín á sviði menntunar og tækni sem meðal annars Apple Distinguished Educator.

Í starfi leiðtoga fræðslumála mun Álfhildur veita sveitarfélaginu forystu í menntamálum, styðja við stjórnendur skóla og leiða verkefni á sviði kennsluráðgjafar, skólaþróunar, símenntunar og sérfræðiþjónustu. Hún hefur störf 10. ágúst næstkomandi.

Auður Inga Ingimarsdóttir leiðtogi málefna fatlaðs fólks og eldra fólks

Auður Inga er þroskaþjálfi að mennt og lauk nýverið meistaragráðu í forystu og stjórnun með áherslu á verkefna- og mannauðsstjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Hún hefur áralanga reynslu af þjónustu við fatlað fólk, þar á meðal sem deildarstjóri búsetukjarna á Sauðárkróki.

Undanfarið hefur Auður Inga starfað sem mannauðsráðgjafi við Háskólann á Hólum þar sem hún hefur sinnt fjölbreyttum verkefnum á sviði mannauðsmála, ráðninga, ráðgjafar við stjórnendur, verkferla og launamála. Sú reynsla, ásamt góðri þekkingu hennar á þjónustu sveitarfélaga, veitir henni traustan grunn til að leiða áframhaldandi þróun þjónustu við fatlað fólk og eldra fólk í Skagafirði.

Í starfi sínu mun Auður Inga leiða faglega þróun málaflokksins, vinna að samhæfingu og eflingu þjónustu, styðja við stjórnendur og starfsfólk og leggja áherslu á gæði, fagmennsku og notendamiðaða þjónustu. Auður Inga hefur störf í haust.

Mikilvæg skref í áframhaldandi þróun þjónustu

Ráðningar Álfhildar og Auðar Ingu eru mjög ánægjulegar fyrir sveitarfélagið. Báðar búa þær yfir öflugri reynslu, fagþekkingu og leiðtogahæfni sem mun nýtast vel við áframhaldandi þróun þjónustu sveitarfélagsins.

Sveitarfélagið býður Álfhildi og Auði Ingu hjartanlega velkomnar til starfa.