Fara í efni

Kveðja frá sveitarstjóra – Verið velkomin í Skagafjörð á Unglingalandsmót UMFÍ 2026

27.07.2026

Kæru þátttakendur Unglingalandsmótsins og fjölskyldur þeirra.

Ég býð ykkur hjartanlega velkomin í Skagafjörð á Unglingalandsmót UMFÍ á Sauðárkróki 2026. Það er okkur sannur heiður að fá að vera á meðal gestgjafa í ár ásamt UMSS og UMFÍ.

Það er ávallt fagnaðarefni þegar okkur Skagfirðingum býðst að halda stærstu íþrótta- og fjölskylduhátíð landsins og ef heimildarleitin mín er ekki að svíkja mig þá er þetta í fimmta sinn sem við tökum á móti íþróttagörpum og fjölskyldum þeirra. Fyrsta mótið var haldið hér árið 2004, síðan 2009, 2014, 2023 og svo auðvitað í ár.

Íþróttaandinn mun umlykja fjörðinn líkt og á fyrri mótum og ljóst er að það verður mikil hátíðarstemmning á komandi dögum. Það sem er svo frábært við þetta mót er að hver sem er á aldrinum 11–18 ára getur tekið þátt á eigin forsendum og öll ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Þá er einnig kappkostað að bjóða upp á fjölbreytta afþreyingu fyrir foreldra, systkini og aðra gesti. Þetta er í megindráttum að mínu mati stórkostleg samveruhátíð sem skilur eftir sig fullt af eftirminnilegum og hlýjum minningum sem endast ævilangt. Ég man sjálfur eftir stemningunni á mótunum hér áður fyrr og gleðinni sem fylgdi því að taka þátt. Ég man hins vegar síður eftir úrslitum leikja eða eigin frammistöðu, sem er einmitt kjarninn í Unglingalandsmótinu. Þ.e. ekki hvort unnið sé eða tapað, heldur upplifunin, þátttakan og minningarnar sem verða til á leiðinni.

Mótssvæðið verður á Sauðárkróki, en þar er að finna fyrsta flokks aðstöðu til íþróttaiðkunar og öll helsta grunnþjónusta innan seilingar meðan á dvöl ykkar hér stendur. Þá er vert að nefna að það verður enginn fyrir vonbrigðum með að leggja leið sína um Skagafjörð á milli keppnisgreina en víðs vegar má finna ýmsar skemmtilegar perlur sem gleðja bæði augu og maga fyrir alla aldurshópa. Ég vil hvetja gesti til þess að kíkja inn á heimasíðurnar visitskagafjordur.is og skagafjordur.is til að nálgast gagnlegar upplýsingar um svæðið, þjónustu og afþreyingu.

Það er mín einlæga von að þið farið héðan með fullan minningabanka og að þið hugsið hlýtt til Skagafjarðar og þeirrar gestrisni sem við Skagfirðingar erum þekkt fyrir. Verið ávallt velkomin í Skagafjörð og við hlökkum til að sjá ykkur aftur.