Fara í efni

Veitunefnd Svf Skagafjarðar

33. fundur 19. janúar 2017 kl. 13:00 - 13:45 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Gísli Sigurðsson formaður
  • Einar Eðvald Einarsson varaform.
  • Helgi Þór Thorarensen ritari
  • Úlfar Sveinsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Indriði Þór Einarsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
Fundargerð ritaði: Indriði Þór Einarsson sviðsstjóri veitu og framkvæmdasviðs
Dagskrá

1.Hitaveita - nýframkvæmd í Lýtingsstaðahreppi 2016 og 2017.

Málsnúmer 1602183Vakta málsnúmer

Farið var yfir stöðu fyrirhugaðra hitaveituframkvæmda í Lýtingsstaðahreppi árið 2017.

Boðað hefur verið til kynningarfundar með íbúum mánudaginn 23.janúar nk. kl 14 í félagsheimilinu Árgarði.

Útboð á lagnaefni vegna verksins hefur verið auglýst og verða tilboð opnuð þriðjudaginn 7. febrúar nk.

2.Umsóknir - Ísland ljóstengt 2017

Málsnúmer 1612084Vakta málsnúmer

Farið var yfir innsenda umsókn í verkefnið "Ísland ljóstengt" vegna ljósleiðaravæðingar í dreifbýli.

Fyrri hluti umsóknar fyrir árið 2017 hefur verið skilað inn til fjarskiptasjóðs. Seinni hluta umsóknar á að skila inn til fjarskiptasjóðs 26. janúar nk. og kemur þá í ljós hversu háan styrk Sveitarfélagið Skagafjörður hlýtur árið 2017.

3.Ísland ljóstengt - styrkur 2016

Málsnúmer 1605024Vakta málsnúmer

Farið var yfir stöðu framkvæmda vegna ljósleiðaravæðingar í dreifbýli í tengslum við verkefnið Ísland ljóstengt árið 2016.

Árið 2016 fékk Sveitarfélagið Skagafjörður styrk til lagningar ljósleiðara á svæðinu frá Varmahlíð að Marbæli ásamt Sæmundarhlíð.

Verktaki hefur nú lokið vinnu við lagningu og ídrátt ljósleiðara á svæðinu og mun vinna við tengingu á ljósleiðaranum hefjast á næstu vikum.

Fundi slitið - kl. 13:45.