Ungmennaráð
Menningarhús á Sauðárkróki
Sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs kynnti fyrir ráðinu vinnuna sem liggur að baki hönnuninni.
-
- Menningarhúsið á Flæðunum mun þýða að tjaldsvæðið mun flytja. Tímabundið mun það flytja upp á Nafir en til framtíðar mun því verða fundinn annar varanlegur staður.
- Framkvæmdir munu hefjast á vormánuðum. Fyrst um sinn verður unnið að jarðvegsframkvæmdum. Að þeim loknum þarf að bjóða út bygginguna á Menningarhúsinu.
- Sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs sýndi teikningar af húsinu og sýndi þrívíða útfærslu.
2. Raddir ungs fólks - samtal við ráðamenn
Leiðtogi frístunda- og íþróttamála sagði fram verkefni sem starfsmenn svæðisskrifstofa ÍSÍ/UMFÍ eru að vinna að.
Hugmynd að þetta færi fram vikuna fyrir páska.
3. 16+ opnun í Húsi frítímans
Vel sótt þegar eitthvað skipulagt er á dagskrá.
4. Ball hjá Varmahlíðarskóla v. 50 ára afmælis skólans
Hugmynd um að halda ball að lokinni árshátíð yngra stigs.
Konni búinn að senda fyrirspurnir/boð á skóla í nágrenni Skagafjarðar, bæði austan og vestan við.
5. Nemendaráðsfundir
Gengið illa að halda fundi í Varmahlíðarskóla.
Ekki verið fundir í vetur?
Eru reglulega fundir en ekki endilega skipulagðir nemendaráðsfundir.
6. Félagsmál Varmahlíðarskóla
Lítil virkni. Hvað veldur?
7. Ungmennaráð NV
Hvar stendur það? Leiðtogi frístunda- og íþróttamála mun kanna málið.
Mikið rætt að það vanti að halda viðburði fyrir ungmenni á svæðinu.
8. Fiðringur
3. mars, Hof dagurinn.
Kynning á MA og VMA sama dag.
Varmahlíðarskóli ætlar að taka þátt.