Fara í efni

Umhverfisnefnd

32. fundur 29. nóvember 2005 kl. 14:00 Ráðhúsið á Sauðárkróki

Árið 2005, þriðjudaginn 29. nóv. 2005, kom Umhverfisnefnd Skagafjarðar saman til fundar kl. 14:00 í Ráðhúsinu, Sauðárkróki.

Mætt voru:
Elinborg Hilmarsdóttir, Þorgrímur Ómar Unason, Árni Egilsson og starfsmennirnir Helga Gunnlaugsdóttir garðyrkjustjóri og Hallgrímur Ingólfsson.

Dagskrá: 

  1. Fjárhagsáætlun 2006

  2. Umsókn um styrk

  3. Önnur mál.

Afgreiðslur:

1. Umhverfisnefnd samþykkir að málaflokkum 08 hreinlætismál og 11 umhverfismál í fjárhagsáætlun verði vísað til byggðarráðs og fyrri umræðu í sveitarstjórn. 

2. Varmahlíðarskóli óskar eftir styrk til útgáfu bókar um minnisvarða í Skagafirði að upphæð kr. 100.000. Umhverfisnefnd samþykkir framlagða ósk.

3. Önnur mál. Engin.

 

Fleira ekki gert, fundi slitið.

Árni Egilsson, ritari.