Fara í efni

Umhverfis- og samgöngunefnd

13. fundur 27. apríl 2023 kl. 14:00 - 17:00 að Borgarteigi 15, Sauðárkróki
Nefndarmenn
  • Hrefna Jóhannesdóttir formaður
  • Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir varaform.
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson aðalm.
  • Hildur Þóra Magnúsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Steinn Leó Sveinsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
  • Valur Valsson verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Steinn Leó Sveinsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
Dagskrá

1.Gránumóar, umsókn um starfsleyfi 2023

Málsnúmer 2303206Vakta málsnúmer

Framkvæmdasvið Skagafjarðar hefur sótt um starfsleyfi vegna rekstur malarnámu á Gráumóum. Umsóknin er til meðferðar hjá heilbrigðisfulltrúa Norðurlands vestra. Málið er til meðhöndlunar hjá heilbrigðisnefnd Norðurlands vestra.

2.Gránumóar - stækkun námusvæðis - aðalskipulag.

Málsnúmer 2109105Vakta málsnúmer

Framkvæmdasvið Skagafjarðar er að vinna greinargerð vegna áframhaldandi útvíkkunar á námusvæði á Gránumóum. Í tillögu að stækkun svæðisins verði litið til mögulegrar nýrrar tengingar Þverárfjallsvegar við Kjarnann höfð til hliðsjónar.

Umhverfis- og samgöngunefnd telur afar brýnt að unnið sé að framtíðarsýn á norðanverðum Nöfum og á Gránumóum. Þetta snýr meðal annars að núverandi námusvæði og hugmyndum varðandi bætta innkomu inn í bæinn. Með nýrri tengingu, ef af verður, minnkar umferðin í gegnum athafnarsvæðið á Eyrinni til muna og styttir leiðina frá Sauðárkróki til Blönduóss um 1,6 km. Sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs er falið að vinna málið áfram.

3.Tillaga að breytingu á opnunartíma gámaplana.

Málsnúmer 2304114Vakta málsnúmer

Íslenska gámafélagið óskar eftir að breytingar verði gerðar á opnunartíma gámaplana (móttökustöðva fyrir sorp).

Þegar unnið var að útboði í sorpmálum í Skagafirði var tekið á mörgum þáttum þar á meðal opnunartíma á móttökustöðvum. Það er nokkuð ljóst að m.v. breytingu á sorphirðu að nýting á stöðvunum verður minni en áður. Hins vegar erum við að leggja af stað í nýju kerfi og því mikilvægt að halda þeim opnunartíma sem kemur fram í útboði. Nefndin er tilbúin að endurskoða opnunartíma þegar reynsla er komin á nýtt fyrirkomulag og breytingar á notkun og aðsókn liggja fyrir frá verktaka. Fram að þeim tíma skal opnunartíminn vera samkvæmt útboði og útsendum bæklingi varðandi flokkun í Skagafirði.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir að synja erindinu.

4.Faxi, lagfæring á undirstöðu og viðgerð á listaverki.

Málsnúmer 2007180Vakta málsnúmer

Fyrirhugað er að listaverkið Faxi verði tekið af stalli í sumar og sent til viðgerðar. Einnig er áformað að gera við undirstöðu listaverksins og hafa hana klára þegar Faxi kemur aftur úr viðgerð. Viðgerðin á listaverkinu verður unnin í samstarfi við fjölskyldu Ragnars Kjartanssonar myndhöggvara en hann hefði orðið 100 ára á þessu ári. Gera má ráð fyrir að viðgerðin taki nokkra mánuði.
Umhverfis- og samgöngunefnd felur sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs að vera í samskiptum við fjölskyldu Ragnars varðandi framkvæmd og áætlaðan kostnað verkefnisins.

5.Umhverfisdagar 2023

Málsnúmer 2304132Vakta málsnúmer

Umhverfisdagar í Skagafirði verða í lok apríl og fram í maí og taka bæði félagasamtök og fyrirtæki á svæðinu þátt í þeim. Íbúar eru hvattir til þess að taka til hjá sér, losa sig við rusl af lóðum, þ.m.t. bílhræjum, sækja um stöðuleyfi þar sem það á við og ganga snyrtilega um gámasvæði. Sveitarfélagið vonast til að vel verði við brugðist, þannig að ásýnd sveitarfélagsins batni til muna frá því sem nú er.
Umhverfis- og samgöngunefnd hvetur alla íbúa til að sameinast í átakinu um að ganga vel um.

6.Römpum upp Ísland

Málsnúmer 2203253Vakta málsnúmer

Römpum upp Ísland hópurinn hefur verið í sambandi við framkvæmdasvið Skagafjarðar. Gerðar hafa verið tillögur að verkefnum og er gert ráð fyrir að nokkrir staðir verði "rampaðir upp" í Skagafirði á komandi sumri. Tillögur að verkefnunum verða lagðar til kynningar á fundi í ráðgefandi hópi um aðgengismál sem haldinn verður 10. maí næstkomandi.
Umhverfis- og samgöngunefnd fagnar komu átaksins til Skagafjarðar.

7.Bekkur í fjöruna - ábending

Málsnúmer 2303057Vakta málsnúmer

Ábending og ósk kom frá íbúa um að settu verði bekkur við fjöruna á Borgarsandinum við enda gönguleiðarinnar vinsælu.
Umhverfis og samgöngunefnd þakkar fyrir góða ábendingu og felur sviðsstjóra að skoða uppsetningu bekkja.

8.Sauðárkrókshöfn - fyrirhugaðar framkvæmdir við stálþil 2023

Málsnúmer 2304111Vakta málsnúmer

Í samgönguáætlun er gert ráð fyrir að endurbyggja Efri garð í tveimur áföngum til ársins 2027. Á síðasta ári var fyrsti hluti verksins boðinn út en tilboðum var hafnað þar sem að þau voru langt yfir áætluðum kostnaði. Vegagerðin leggur til bjóða aftur út þennan stálþilskafla (90 m) en nú miðað við -7 m hönnunardýpi í stað -9 m dýpis eins og áður var ráðgert.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir tillögu Vegagerðarinnar um að hönnunardýpi fyrir fyrsta áfanga (90 m) verði -7 m sem aukist svo í - 8 m fyrir það sem eftir er og felur hafnastjóra í samstarfi við sviðsstjóra framkvæmda og veitusviðs Skagafjarðar að vinna málið áfram í samstarfi við Vegagerðina.

Dagur Þór Baldvinsson hafnastjóri sat þennan lið.

9.Garðlönd Sauðárkróki 2023, Skallaflöt

Málsnúmer 2304142Vakta málsnúmer

Ástand núverandi garðlands á Sauðárkróki er orðið mjög slæmt og þarfnast svæðið hvíldar og viðhalds. Lagt er til að opnað verði nýtt garðland sunnar á Nöfunum á túni sem kallað er Skallaflöt. Um er að ræða svæði sem er um 8500 m² að stærð.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir tillöguna og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.

10.Fundagerðir Hafnasambands Íslands 2023

Málsnúmer 2301004Vakta málsnúmer

Fundagerðir Hafnasambands Íslands nr. 449, 450 og 451 lagðar fram til kynningar.
Dagur Þór Baldvinsson hafnastjóri sat þennan lið.

11.Umsókn um framkvæmdaleyfi, útvíkkun námu á Gránumóum

Málsnúmer 2202118Vakta málsnúmer

Framkvæmdasvið Skagafjarðar sótti um framkvæmdaleyfi vegna útvíkkunar námu á Gránumóum í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 7. gr. reglugerðar nr. 772/2012. Um er að ræða efnistöku á um 0,9 ha svæði og er áætlað að efnistaka á svæðinu geti orðið allt að 49.000 m³ á næstu 3 árum. Skipulagsnefnd og sveitastjórn hafa samþykkt að veita leyfið.

Fundi slitið - kl. 17:00.