Fara í efni

Umhverfis- og samgöngunefnd Svf Skagafjarðar

180. fundur 17. maí 2021 kl. 10:00 - 12:00 að Borgarteigi 15, Sauðárkróki
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Huld Þórðardóttir formaður
  • Guðlaugur Skúlason varaform.
  • Steinar Skarphéðinsson ritari
Starfsmenn
  • Steinn Leó Sveinsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
  • Helga Björk Gunnlaugsdóttir garðyrkjustjóri
  • Valur Valsson verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Steinn Leó Sveinsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
Dagskrá

1.Ósk um að felld verði tré við Kirkjuklauf á SAK.

Málsnúmer 2105074Vakta málsnúmer

Eigendur að Suðurgötu 8 á Sauðárkróki, óska eftir því við sveitarfélagið að það felli tré sem standa við Kirkjuklaufina; neðst við upphaf svokallaðs Kirkjustígs. Ástæða fyrir þessari ósk er, að umræddur trjálundur skyggir á sólpall sem stendur vestan megin við húseign okkar og skerðir mjög þann tíma sem hægt er að njóta sólar á pallinum.

Trjálundurinn verður skoðaður með hliðsjón að aldri og sögu trjáa í Sveitarfélaginu Skagafirði. Til stendur að skrásetja trjágróður til varðvörslu og ákveða hvað má fjarlægja. Ekki er hægt að verða við erindinu á meðan þessi vinna er í gangi.

Helga Björk Gunnlaugsdóttir garðyrkjustjóri sat þennan lið.

2.Lenging á mön við Sæmundarhlíð og Túngötu 2021

Málsnúmer 2104206Vakta málsnúmer

Ragnar Helgason kt. 090888-3239 leggur fram fyrirspurn varðandi lengingu á mön sem er við Túngötu/Sæmundarhlíð á Sauðárkróki. Í dag er mön meðfram Sæmundarhlíð sem drepur niður hljóð og ljósmengun vegna umferðar á Sæmundarhlíð, ásamt því að veita öryggi og skjól. Spurt er hvort sé mögulegt að fá mönina framlengda lengra upp Sæmundarhlíð ca 30 m, og inn á Túngötuna um ca 40m, skv. meðfylgjandi teikningu á loftmynd.

Mön mun mögulega valda snjósöfnun á gatnamótum, skerða útsýni og auka slysahættu. Því mun Sveitarfélagið ekki fara í þessa framkvæmd. Bent er á að lóðarhafar hafa leyfi til að loka lóðum sínum með mön/skjólbelti á sinni lóð samkvæmt ákvæði byggingarreglugerðar. Garðyrkjustjóra er falið að skoða svæði sveitarfélagsins með það í huga að planta trjám á svæðinu.

Helga Björk Gunnlaugsdóttir garðyrkjustjóri sat þennan lið.

3.Opið svæði, leiksvæði við Bárustíg.

Málsnúmer 2104207Vakta málsnúmer

Um er að ræða opið svæði (leiksvæði) milli Skagfirðingabrautar, Bárustígs og Hólavegar. Svæðið hefur verið notað sem snjósöfnunarsvæði en ákveðið hefur verið að hætta að nýta það undir snjó.

Sviðstjóra er falið að kanna rétt lóðarhafa sem eiga aðliggjandi lóðir að svæðinu um aðgengisrétt þeirra. Stefnt er að uppbyggingu svæðisins sem hverfisgarð.

Helga Björk Gunnlaugsdóttir garðyrkjustjóri sat þennan lið.

4.Opin svæði Ránarstígur - Ægisstígur, Smáragrund - Viðigrund

Málsnúmer 2104208Vakta málsnúmer

Um er að ræða annarsvegar svæði milli Ránarstígs og Ægisstígs og hinsvegar svæði milli Smáragrundar og Víðigrundar. Vinna þarf að hugmyndavinnu fyrir nýtingu svæðanna.

Sviðstjóra er falið að kanna rétt lóðarhafa sem eiga aðliggjandi lóðir að svæðunum um aðgengisrétt þeirra. Stefnt er að uppbyggingu svæðanna sem hverfisgarða.

Helga Björk Gunnlaugsdóttir garðyrkjustjóri sat þennan lið.

5.Bekkir við Árkíl og Ártún

Málsnúmer 2105101Vakta málsnúmer

Nefndinni hafa borist óskir um fjölgun á bekkjum við stíga í nágrenni við Árkíl og neðan Ártúns.

Garðyrkjustjóra ef falið að sjá um fjölgun á bekkjum.

Helga Björk Gunnlaugsdóttir garðyrkjustjóri sat þennan lið.

6.Siglingaklúbburinn Drangey, skipulag lóðar við smábátahöfn

Málsnúmer 2104216Vakta málsnúmer

Fyrirhugaðar eru framkvæmdir á lóð Siglingarklúbbsins við smábátahöfnina. Skipuleggja þarf opið svæði milli lóðar klúbbsins og komandi hringtorgs.

Helga Björk Gunnlaugsdóttir garðyrkjustjóri sat þennan lið.

7.Umsögn - Sauðárgil - útivistarskýli

Málsnúmer 2105035Vakta málsnúmer

Borist hefur umsögn frá Brunavörnum Skagafjarðar vegna útivistarskýlis í Sauðárgili þar sem fyrirliggjandi teikningar eru samþykktar.

Næstu skref eru að klára burðarþolsteikningar svo hægt sé að hefja uppbyggingu skýlisins.

Helga Björk Gunnlaugsdóttir garðyrkjustjóri sat þennan lið.

8.Varmahlíð Laugavegur 17 - 19, Norðurbrún - jarðsig

Málsnúmer 2105085Vakta málsnúmer

Fyrirliggur hönnun á viðgerð á bakka ofan Laugavegar 17-19 í Varmahlíð. Gögnin hafa verið send á Ofanflóðasjóð og sótt verður um styrk til framkvæmdarinnar.

Helga Björk Gunnlaugsdóttir garðyrkjustjóri sat þennan lið.

9.Matvælastofnun biður um tilkynningar um dauða villta fugla

Málsnúmer 2104260Vakta málsnúmer

Matvælastofnun vekur athygli sveitarfélaga á að stofnunin óskar eftir tilkynningum ef villtir dauðir fuglar finnast í sveitarfélaginu, nema augljóst sé að þeir hafi drepist af slysförum. Tilgangurinn er að skima þá fyrir fuglaflensu og fylgjast þannig með mögulegri útbreiðslu hennar meðal farfugla hérlendis.

Helga Björk Gunnlaugsdóttir garðyrkjustjóri sat þennan lið.

Fundi slitið - kl. 12:00.