Fara í efni

Umhverfis- og samgöngunefnd Svf Skagafjarðar

159. fundur 28. ágúst 2019 kl. 10:00 - 11:15 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Huld Þórðardóttir formaður
  • Guðlaugur Skúlason varaform.
  • Steinar Skarphéðinsson ritari
  • Stefán Vagn Stefánsson 2. varam.
  • Högni Elfar Gylfason varam. áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Indriði Þór Einarsson Sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
  • Laufey Kristín Skúladóttir
  • Regína Valdimarsdóttir
  • Álfhildur Leifsdóttir
  • Jóhanna Ey Harðardóttir
Fundargerð ritaði: Indriði Þór Einarsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
Dagskrá
Stefán Vagn Stefánsson sat 1. lið fundar í fjarveru Ingibjargar Huldar Þórðardóttur.

1.Snjómokstur - útboð 2019

Málsnúmer 1903295Vakta málsnúmer

Málið aftur á dagskrá Umhverfis og samgöngunefndar,kalla þurfti til varamenn þar sem aðalmenn eru vanhæfir.

Lögð var fyrir fundargerð tilboðsopnunar vegna snjómoksturs á Sauðárkróki 2019 til 2022. Alls bárust þrjú tilboð í verkið frá Vinnuvélum Símonar ehf., Steypustöð Skagafjarðar ehf. og Víðmimelsbræðrum ehf.
Umhverfis- og samgöngunefnd felur sviðstjóra að semja við lægstbjóðanda, Vinnuvélar Símonar ehf.

Ingibjörg Huld Þórðardóttir og Steinar Skarphéðinsson véku af fundi undir afgreiðslu málsins.

2.Verðandi - miðstöð endurnýtingar

Málsnúmer 1908136Vakta málsnúmer

lagður var fram til kynningar tölvupóstur frá Sólveigu Pétursdóttur og Þuríði Helgu Jónasdóttur stofnendum verkefnisins "Verðandi - Miðstöð endurnýtingar" sem unnið var samhliða átakinu Ræsing Skagafjarðar.
Í tölvupóstinum er þess farið á leit að viðskiptaáætlun verkefnisins verði kynnt fyrir nefndinni jafnframt að kannaður sé möguleiki á húsnæði á vegum Sveitarfélagsins sem hentað gæti starfseminni.

3.Leiksvæði í Skagafirði - kortlagning

Málsnúmer 1908137Vakta málsnúmer

Lagt var fyrir erindi frá Ingibjörg Huld Þórðardóttur, formanni umhverfis- og samgöngunefndar, um leiksvæði í Skagafirði. Í erindinu segir;
"Undirrituð óskar eftir yfirliti yfir þau leiksvæði í Skagafirði sem eru í umsjón sveitarfélagsins, staðsetningu þeirra og hvernig þau eru útbúin. Og að í framhaldinu sé metið hvort þörf sé á úrbótum með öryggi og ánægju barnanna okkar að leiðarljósi.
Ingibjörg Huld Þórðardóttir, formaður Umhverfis- og samgöngunefndar"

Umhverfis- og samgöngunefnd felur sviðstjóra að vinna að kortlagningu leiksvæða í Skagafirði og leggja fyrir nefndina.

4.Umferðaröryggi á Strandvegi

Málsnúmer 1905241Vakta málsnúmer

Lagður var fyrir tölvupóstur frá Margréti Silju Þorkelsdóttur, deildarstjóra hjá Vegagerðinni, varðandi öryggisúttekt á þjóðvegi í þéttbýli á Sauðárkróki og í Varmahlíð.
Boðað hefur verið til úttektarinnar þriðjudaginn 10. september nk. og munu fulltrúar frá veitu- og framkvæmdasviði Sveitarfélagsins taka þátt í úttektinni.
Nefndin fer fram á að þjóðvegur í gegnum Hofsós verði tekin út samhliða Sauðárkrók og Varmahlíð. Nefndin leggur áherslu á að horft sé til allrar umferðar, gangandi, hjólandi og bíla.

5.Malarnám á Gránumóum

Málsnúmer 1908138Vakta málsnúmer

Undanfarin ár hefur verið tekið gífurlegt magn af efni í námu á Gránumóum við Sauðárkrók. Náman er í eigu Sveitarfélagsins og ekki hefur verið tekið gjald fyrir efni sem þaðan er tekið.
Mjög algent er að Sveitarfélög rukki hóflegt gjald fyrir efnistöku í landi í eigu þess.
Nefndin felur sviðstjóra að kanna hvernig gjaldtöku er háttað hjá öðrum sveitarfélögum.

6.Jarðvegstippur við Borgargerði

Málsnúmer 1908139Vakta málsnúmer

Núverandi jarðvegstippur við Borgargerði á Sauðárkróki er nánast fullur og skoða þarf möguleika á nýju svæði þar sem hægt er að haugsetja jarðveg sem fellur til við byggingaframkvæmdir.

Fundi slitið - kl. 11:15.