Fara í efni

Umhverfis- og samgöngunefnd Svf Skagafjarðar

138. fundur 16. apríl 2018 kl. 16:30 - 17:15 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Sigríður Magnúsdóttir formaður
  • Ari Jóhann Sigurðsson varaform.
  • Einar Þorvaldsson aðalm.
  • Steinar Skarphéðinsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Indriði Þór Einarsson Sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
Fundargerð ritaði: Indriði Þór Einarsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
Dagskrá

1.Eftirlit með móttöku á úrgangi og farmleifum frá skipum

Málsnúmer 1804018Vakta málsnúmer

Lagt var fram til kynningar erindi frá Umhverfisstofnun varðandi eftirlit með móttöku á úrgangi og farmleifum frá skipum.

2.Íshlutfall við endurvigtun og staða álagningar á veiðigjaldi

Málsnúmer 1801055Vakta málsnúmer

Lagður var fram til kynningar tölvupóstur frá Fiskistofu varðandi íshlutfall og stöðu álagningar á veiðigjaldi.

3.Sauðárkrókshöfn - dýpkun 2018

Málsnúmer 1804077Vakta málsnúmer

Lagðar voru fyrir fundinn teikningar frá Vegagerðinni vegna fyrirhugaðrar dýpkunar í Sauðárkrókshöfn. Áætlað er að dýpka snúningshring innan hafnar annarsvegar og svæði við enda sandfangara hinsvegar. Alls er áætluð dýpkun um 61.000m3. Gert er ráð fyrir að hluti dýpkunarefnis verði nýttur í landfyllingu en megninu af dýpkunarefni verði varpað í hafið.
Einnig var lögð fyrir fundinn umsókn til Umhverfisstofnunar frá Skagafjarðarhöfnum um leyfi til vörpunar á dýpkunarefni í hafið.
Nefndin samþykkir að fela sviðstjóra að vinna áfram að nauðsynlegum leyfisveitingum vegna framkvæmdarinnar ásamt annari undirbúningsvinnu.

4.Hreinsunarátak á Hofsósi

Málsnúmer 1801273Vakta málsnúmer

Lögð var fyrir fundinn auglýsing vegna hreinsunarátaks á Hofsósi.
Efnt verður til hreinsunarátaks á Hofsósi 10. til 14. maí og mun Sveitarfélagið Skagafjörður og Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra standa sameiginlega að átakinu. Átakið verður auglýst ítarlegar á næstu dögum.
Umhverfis- og samgöngunefnd leggur áherslu á að farið verði í samskonar átak víðar í Sveitarfélaginu.

5.Gjaldskrá Skagafjarðarhafna - breyting á 12. grein

Málsnúmer 1804078Vakta málsnúmer

Lögð var fyrir fundinn tillaga að breytingu á gjaldskrá Skagafjarðarhafna. Tillagan tekur til breytinga á 12. grein gjaldskrár varðandi gjöld fyrir úrgang. Meginbreytingin lítur að gjaldi fyrir úrgang vegna skipa sem falla undir grein 11 C í lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda nr. 33 frá 2004.
Nefndin samþykkir breytingu á gjaldskrá og vísar til sveitarstjórnar til afgreiðslu.

Fundi slitið - kl. 17:15.