Fara í efni

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar

386. fundur 28. júní 2019 kl. 16:15 - 16:20 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Stefán Vagn Stefánsson aðalm.
  • Sigríður Magnúsdóttir 3. varam.
  • Laufey Kristín Skúladóttir aðalm.
  • Gísli Sigurðsson aðalm.
  • Regína Valdimarsdóttir forseti
  • Bjarni Jónsson aðalm.
  • Álfhildur Leifsdóttir aðalm.
  • Ólafur Bjarni Haraldsson aðalm.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir aðalm.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Helga Sigurrós Bergsdóttir ritari
Fundargerð ritaði: Helga Sigurrós Bergsdóttir stjórnsýsluritari
Dagskrá
Boðað var til aukafundar til að ganga frá aðkallandi máli.

1.Reglur um útnefningu heiðurborgara

Málsnúmer 1906277Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að reglum um val og útnefningu heiðursborgara Sveitarfélagsins Skagafjarðar.
Sveitarstjórnarfulltrúar hafa kynnt sér reglurnar og eru þær bornar upp til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Samþykkt með níu atkvæðum.

2.Útnefning heiðursborgara Sveitarfélagsins Skagafjarðar

Málsnúmer 1906278Vakta málsnúmer

Forseti tók til máls.

Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar hefur ákveðið að útnefna heiðursborgara sveitarfélagsins.

Gerð er tillaga um að Bjarni Haraldsson, kt. 140330-2139, verði heiðursborgari sveitarfélagsins.

Bjarni Haraldsson, kaupmaður og bílstjóri, fæddist árið 1930 á Sauðárkróki og ólst þar upp. Bjarni hóf bifreiðaakstur ungur að árum er hann tók bílprófið árið 1948 og ók hann fyrst norðurleiðarrútu fyrir Norðurleið hf. á leiðinni Akureyri ? Reykjavík. Árið 1954 stofnaði hann og rak sitt eigið vöruflutningafyrirtæki og tók að sér flutninga milli Sauðárkróks og Reykjavíkur. Bjarni fór að vinna innanbúðar með föður sínum í Verslun Haralds Júlíssonar árið 1959 og þegar faðir hans féll frá árið 1973 tók hann við verslunarrekstrinum sem hann hefur starfrækt síðan. Verslun Haralds Júlíssonar, sem í daglegu tali er nú oft kölluð verslun Bjarna Har. er fyrir löngu orðin mikilvægur þáttur í menningarlífi Sauðárkróks og í ímynd allra Skagfirðinga sem dregur ferðamenn að enda fáar ef nokkrar búðir sem hans eftir á Íslandi. Alkunnur er húmor Bjarna og tilsvör hans orðin landsþekkt, en Bjarni er með ríka þjónustulund og hefur gaman af því að spjalla við fólk og greiða götur þess. Með því að sæma Bjarna Haraldsson heiðursborgaratitli vill Sveitafélagið Skagafjörður þakka Bjarna fyrir hans framlag til verslunar- og þjónustureksturs til íbúa sveitarfélagsins og gesta í um 70 ár og fyrir að gera Skagfirskt samfélag enn betra.

Gísli Sigurðsson kvaddi sér hljóðs.

Tillagan borin upp til afgreiðslu og samþykkt samhljóða með níu atkvæðum.

Fundi slitið - kl. 16:20.