Fara í efni

Sveitarstjórn Skagafjarðar

21. fundur 20. desember 2023 kl. 16:15 - 16:20 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Einar Eðvald Einarsson 1. varaforseti
  • Hrund Pétursdóttir aðalm.
  • Hrefna Jóhannesdóttir aðalm.
  • Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir forseti
  • Guðlaugur Skúlason aðalm.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir aðalm.
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson aðalm.
  • Álfhildur Leifsdóttir aðalm.
  • Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir 2. varaforseti
Starfsmenn
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
  • Helga Sigurrós Bergsdóttir stjórnsýsluritari
Fundargerð ritaði: Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
Dagskrá
Erindið var á fundi byggðarráðs fyrr um daginn og var samþykkt samhljóða um að taka það fyrir með afbrigðum.
Hrefna Jóhannesdóttir var í fjarfundasbúnaði.

1.Útsvarshlutfall í Skagafirði 2024

Málsnúmer 2310020Vakta málsnúmer

Fyrir liggur samkomulag á milli ríkis og sveitarfélaga, dags. 15.12.2023, varðandi fjármögnun þjónustu við fatlað fólk og hækkun útsvarsálagningar.
Með vísan til ákvæða varðandi breytingu á fjármögnun á þjónustu við fatlað fólk í fyrirliggjandi samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga, dags. 15.12. 2023, er byggir á breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga sem samþykkt var á Alþingi 15.12. 2023, samþykkir sveitarstjórn Skagafjarðar að álagningahlutfall útsvars fyrir árið 2024 hækki um 0,23% og verði 14,97%.
Breyting á útsvari mun ekki leiða til þess að heildarálögur á skattgreiðendur hækki þar sem tekjuskattsálagning ríkisins lækkar um samsvarandi á móti.
Tillagan samþykkt samhljóða með níu atkvæðum

Fundi slitið - kl. 16:20.