Fara í efni

Samstarfsnefnd með Akrahreppi

21. fundur 01. júlí 2013 kl. 13:00 - 16:25 í Ráðhúsi, Skr.
Nefndarmenn
  • Valdimar Óskar Sigmarsson aðalm.
  • Sigríður Svavarsdóttir aðalm.
  • Þorkell Gíslason varam.
  • Ásta Björg Pálmadóttir sveitarstjóri
  • Herdís Á Sæmundardóttir sviðstjóri fjölskyldusviðs
  • Agnar Gunnarsson oddviti Akrahrepps
Fundargerð ritaði: Ásta Pálmadóttir sveitarstjóri
Dagskrá
Sigríður A. Jóhannsdóttir sat fundinn undir lið 1.

1.Auglýst eftir skólastjóra Varmahlíðarskóla

Málsnúmer 1306120Vakta málsnúmer

Farið var yfir skýrslu Capacent um umsækjendur um stöðu skólastjóra Varmahlíðarskóla. Alls bárust 6 umsóknir. Samstarfsnefndin samþykkir að ráða Álfheiði Freyju Friðbjarnardóttur í starfið.

2.Birkilundur - biðlisti

Málsnúmer 1306041Vakta málsnúmer

Samstarfsnefndin samþykkir að auglýsa eftir dagmömmu í Varmahlíð eða næsta nágrenni.

Fundi slitið - kl. 16:25.