Til fundarins mætti Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV), í gegnum fjarfundarbúnað. Kynnti hún drög og hugmyndir að áhersluverkefnum landshlutans.
Áhersluverkefni SSNV eru unnin á grundvelli gildandi samnings um Sóknaráætlun Norðurlands vestra og hafa beina skírskotun til markmiða hennar, auk þess að styðja við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Er verkefnunum ætlað að styðja við markmið sóknaráætlunar með nánu samstarfi við sveitarfélögin á svæðinu, meðal annars með því að fjölga störfum og laða að fjárfestingar í landshlutanum.
Byggðarráð þakkar framkvæmdastjóra SSNV fyrir greinargóða kynningu og leggur áherslu á áframhaldandi gott samstarf við samtökin um framgang sóknaráætlunar og uppbyggingu atvinnulífs á svæðinu.