Sigríður Hjaltadóttir kom sem gestur inn á fundinn í gegnum fjarfundarbúnað og kynnti áhrifin sem yfirvofandi breytinga munu hafa á sveitarfélögin og þau verkefni sem eftir sitja hjá sveitarfélögunum. Byggðarráð þakkar Sigríði kærlega fyrir komuna.
Byggðarráð Skagafjarðar tekur undir þau sjónarmið og áhyggjur sem fram koma í sameiginlegri grein landshlutasamtaka sveitarfélaga um framtíð heilbrigðiseftirlitsins sem send hefur verið viðkomandi ráðuneytum. Þar er bent á að þrátt fyrir að Alþingi hafi samþykkt umfangsmiklar breytingar á fyrirkomulagi heilbrigðis-, matvæla- og mengunarvarnaeftirlits liggi enn ekki fyrir svör við fjölmörgum grundvallarspurningum um framkvæmd breytinganna.
Byggðarráð telur sérstaklega mikilvægt að ríkið skýri án tafar hvernig staðið verður að yfirfærslu verkefna, gagna, leyfa, málaskráa og annarra stjórnsýslugagna, hver beri kostnað af þeirri yfirfærslu og hvernig tryggt verði að ábyrgð og rekjanleiki mála haldist órofinn. Jafnframt þarf að liggja fyrir hvernig farið verður með starfsfólk heilbrigðiseftirlitanna, starfsmannaréttindi, lífeyrisskuldbindingar, samninga, húsnæði, búnað og aðrar eignir sem sveitarfélög hafa byggt upp á undanförnum áratugum.
Byggðarráð leggur einnig áherslu á að skýrt verði hvaða verkefni verða áfram á ábyrgð sveitarfélaga, hvaða fjármögnun fylgir þeim verkefnum og hvaða úrræði sveitarfélög hafa til að sinna þeim. Þá er nauðsynlegt að tryggja að breytingarnar leiði ekki til lakara aðgengis að þjónustu, minni staðþekkingar eða verri viðbragðsgetu á landsbyggðinni.
Byggðarráð Skagafjarðar skorar því á ríkisstjórn og viðkomandi ráðherra að leggja fram skýra og tímasetta framkvæmdaáætlun um innleiðingu laganna og svara þeim álitaefnum sem landshlutasamtök sveitarfélaga hafa ítrekað kallað eftir að verði skýrð áður en breytingarnar taka gildi.