Fara í efni

Samráð;Drög að þingsályktun um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku

Málsnúmer 2608025

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 204. fundur - 10.08.2026

Lagt fram til umsagnar drög að stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku. Stefnunni er ætlað að vera leiðbeinandi og skilgreina þau markmið sem flutningsfyrirtækinu er ætlað að vinna að.

Byggðarráð Skagafjarðar fagnar því að fram séu komin drög að stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku og leggur áherslu á að uppbyggingin tryggi jafnt aðgengi landsmanna að öruggri og áreiðanlegri raforku og styðji við atvinnuþróun og orkuskipti um land allt.
Byggðarráð tekur undir það mat stjórnvalda að brýnt sé að bæta stöðu raforkumála á Vestfjörðum og Norðausturlandi. Ráðið bendir hins vegar á að Norðurland vestra býr einnig við verulegar takmarkanir í flutningskerfi raforku sem hamla atvinnuuppbyggingu, orkuskiptum og nýsköpun. Það er því mikilvægt að stefnan taki einnig mið af þörfum svæðisins og að uppbygging flutningskerfisins leiði til raunverulegrar aukningar á afhendingaröryggi og flutningsgetu á Norðurlandi vestra.
Aðgengi að raforku er ein af grundvallarforsendum byggðaþróunar. Norðurland vestra hefur um árabil ekki haldið í við landsmeðaltal í íbúaþróun og því er það sameiginlegt verkefni stjórnvalda og heimamanna að skapa skilyrði fyrir aukna atvinnuuppbyggingu og fjölgun íbúa. Traustir raforkuinnviðir eru þar lykilatriði og forsenda þess að svæðið geti nýtt þau tækifæri sem felast í atvinnuþróun, orkuskiptum og aukinni verðmætasköpun.
Byggðarráð hefur áður bent á að meginflutningslínur raforku til Skagafjarðar séu fulllestaðar og að flutningsgeta til svæðisins sé takmarkandi þáttur fyrir frekari uppbyggingu. Jafnframt er Rangárvallalína elsti hluti byggðalínunnar á Íslandi. Byggðarráð fagnar því þeirri uppbyggingu sem fyrirhuguð er á meginflutningskerfinu en telur jafnframt nauðsynlegt að ráðist verði í endurnýjun Sauðárkrókslínu 1 hið fyrsta og að flutningsgeta til Sauðárkróks og Norðurlands vestra verði aukin þannig að raforkuinnviðir standi ekki í vegi fyrir frekari uppbyggingu atvinnulífs og samfélags í landshlutanum.