Lagt fram til umsagnar áform dómsmálaráðuneytisins um skipulagsbreytingar lögreglunnar, mál nr. S-138/2026 sem kynnt er í samráðsgátt stjórnvalda. Um er að ræða áform um fækkun lögregluembætta úr níu í fjögur til fimm með það að markmiði að auka skilvirkni og efla löggæslu.
Byggðarráð tekur undir fyrri bókun stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) um málið og ítrekar mikilvægi þess að allar breytingar á skipulagi lögregluþjónustu taki mið af sérstöðu landsbyggðarinnar, miklum vegalengdum og þeirri þjónustu sem íbúar og sveitarfélög reiða sig á í daglegu lífi.
Byggðarráð lýsir áhyggjum af því að fyrirhugaðar breytingar geti leitt til minni nærveru stjórnenda, veikara tengslanets við sveitarfélög og skertrar þjónustu þegar fram líða stundir, þrátt fyrir yfirlýst markmið um hið gagnstæða. Ráðið telur mikilvægt að ekki verði dregið úr starfsemi lögreglunnar á Norðurlandi vestra, að lögreglustöðvar í landshlutanum verði áfram reknar af fullum krafti og að staðbundin þekking, reynsla og sérhæfing sem byggð hefur verið upp innan embættisins glatist ekki.
Byggðarráð áskilur sér rétt til að skila umsögn um málið þegar frumvarp eða nánari tillögur liggja fyrir og lýsir sig reiðubúið til frekara samráðs við dómsmálaráðuneytið um framtíðarskipan lögregluþjónustu á Norðurlandi vestra.