Fara í efni

Lokaskýrsla um hreinsunar- og úrbótaaðgerðir vegna jarðvegsmengunar á Hofsósi

Málsnúmer 2607128

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 204. fundur - 10.08.2026

Lögð fram til kynningar lokaskýrsla um hreinsunar- og úrbótaaðgerðir vegna jarðvegsmengunar á Hofsósi sem unnin var af Verkís og dagsett er í júní 2026. Í skýrslunni kemur fram að hreinsunar- og mótvægisaðgerðir sem ráðist var í vegna mengunarinnar hafi borið fullnægjandi árangur og að mælingar sýni að styrkur mengunarefna í jarðvegslofti og innilofti sé innan viðmiðunarmarka. Eftirfylgnivöktun staðfestir jafnframt að mengun hafi ekki tekið sig upp að nýju eftir að hreinsunarbúnaður var tekinn úr notkun.

Byggðarráð fagnar því að þessum mikilvæga áfanga sé náð og að unnin hafi verið heildstæð samantekt á framkvæmd aðgerða, vöktun og árangri þeirra.

Jafnframt lýsir byggðarráð yfir áhyggjum af stöðu og framtíðarþróun þeirra eigna sem urðu fyrir áhrifum mengunarinnar og mikilvægi þess að skýra næstu skref. Byggðarráð felur sveitarstjóra að taka saman yfirlit um stöðu þeirra eigna sem urðu fyrir áhrifum mengunarinnar og eiga í framhaldi af því samtal við Festi, móðurfélag N1, um áform félagsins með húseignir þess á Hofsósi, þar á meðal fyrrum bensínafgreiðslu við Skólagötu, með það að markmiði að leita farsællar niðurstöðu um framtíð svæðisins.