Árni Gísli Brynleifsson lóðarhafi Víðigrundar 13 leggur til við Sveitarfélagið að sett verði hraðahindrun með gangbraut á tilteknu svæði við gatnamót Víðigrundar og Grundarstígs, tillaga að staðsetningu er sýnd með svörtum ramma á mynd sem fylgir erindinu. Mikil umferð gangandi vegfarenda fer um svæðið á hverjum degi og sérstaklega í kringum skólahald. Hámarkshraði er 30 km/klst en er ekki virtur að
miklu leiti og hefur Árni Gísli orðið ótal mörgum sinnum vitni að því þegar bílar keyra ansi greiðlega hér framhjá þegar gangandi vegfarendur reyna að komast þarna yfir götuna á mjög fjölfarinn göngustíg sem liggur upp að Árskóla.
Tel ég að þetta auki umferðaröryggi til muna og þá sérstaklega fyrir þau börn sem þarna fara yfir á leið í og úr skóla. Mun þetta einungis hafa áhrif á bílastæði við mitt hús við Víðigrund 13 og skal ég glaður láta þar undan svæði til að auka öryggi gangandi vegfarenda.
Í sumar verður ráðist í stórar framkvæmdir við götuna og er því borðliggjandi að nýta tækifærið og klára þetta mál fyrir þann tíma.
Eins væri möguleiki á sambærilegri lausn við Víðigrund 1 eða í námunda við hana en veit ég að eigandi þeirrar fasteignar hefur einnig áhyggjur af þeim sem fara yfir götuna á þeim slóðum.
Skipulagsnefnd þakkar fyrir ábendinguna mun hafa hana til hliðsjónar við áframhaldandi vinnu við deiliskipulag við Víðigrund og mun jafnframt vísa erindinu áfram til landbúnaðar- og innviðanefndar Skagafjarðar.