Fara í efni

Iðutún 14 - Umsókn um breikkun á innkeyrslu

Málsnúmer 2604176

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 97. fundur - 04.05.2026

Ingvar Páll Ingvarsson og Valdís Brá Þorsteinsdóttir lóðarhafar Iðutúns 14, Sauðárkróki óska eftir leyfi til breikkunar innkeyrslu við Iðutún 14. Núverandi innkeyrsla er malbikuð og er 5,1 m að breidd. Óskað er eftir að breikka innkeyrslu í 6,1 m og gangstíg þar við hliðina 1,5 m, samtals breidd 7,6 m.
Á aðaluppdrætti sem samþykktur var 20.9.2019, er fyrirhuguð breidd innkeyrslu og gangstígs, 7,6 m. Jarðvegsskipti voru gerð í samræmi við þann uppdrátt. Þá má einnig sjá á meðfylgjandi ljósmynd að syðri kantsteinn á núverandi innkeyrslu stefnir inn í bílskúrshurðarop.
Um framkvæmdina, stefnt er að því að planið/innkeyrslan verði steinsteypt frá götu og að bílskúr, breidd 6,1 m, en gangstígur þar við hliðina verði hellulagður, breidd 1,5 m. Niðurfallsrenna verður í planinu, samsíða götu, staðsett um 3 m frá götu. Snjóbrætt verður frá niðurfallsrennu og að húsi, þ.e. ekki verður snjóbræðsla í plani eða gangstíg 3 m frá götubrún og í átt að húsi. Planið verður því sem næst samskonar og við húsið Iðutún 12.
Engir lokar eða veitubrunnar eru á framkvæmdasvæði.
Fyrirliggur jákvæð umsögn Veitu- og framkvæmdasviðs Skagafjarðar.

Skipulagsnefnd samþykkir með tveimur atkvæðum umbeðna breikkun á innkeyrslu en minnir á að verkið skal unnið í samráði við Veitu- og framkvæmdasvið Skagafjarðar.

Sigurður H. Ingvarsson og Jón Daníel Jónsson véku af fundi við afgreiðslu málsins.