Fara í efni

Lóð 14 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi.

Málsnúmer 2604156

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 84. fundur - 30.04.2026

Þórður Karl Gunnarsson tæknifræðingur sækir f.h. sveitarfélagsins Skagafjarðar um leyfi til að flytja aðstöðuhús sem stendur á tjaldsvæði við sundlaug Sauðárkróks. Húsið verður flutt og því komið fyrir á tjaldsvæði sem verið er að gera á Lóð 14 á Nöfum, L143946. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir á Stoð ehf. verkfræðistofu af umsækjanda. Uppdrættir í verki 41520001, númer A-100, A-101 og A-102, dagsettir 22.04.2026. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.