Landbúnaðar- og innviðanefnd - 45
Málsnúmer 2604010F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 48. fundur - 22.04.2026
Fundargerð 45. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar frá 16. apríl 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 48. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 45 Lögð fram lokadrög að Fjallskilasamþykkt Skagafjarðar.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjallskilasamþykktina með áorðnum breytingum samhljóða og vísar til sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Fjallskilasamþykkt Skagafjarðar, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 45 Forstöðumaður framkvæmda Sigurður Arnar Friðriksson kynnir minnisblað vegna fráveitumála á og frá Nöfum, enda þekkt að vatn flæðir gjarnan niður klaufar og veldur óþægindum og jafnvel skaða. Í minnisblaðinu kemur fram að verið er að vinna að lausnum á fráveituvandanum í samvinnu við Stoð verkfræðistofu og stefnt er að ákveðnum úrbótum strax í sumar. Bókun fundar Afgreiðsla 45. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 48. fundi sveitarstjórnar 22. apríl 2026 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 45 Lagður fram tölvupóstur dags. 27.03.2026. frá Maríu Ingiríði Reykdal með ósk um stærri sorpílát fyrir bæði heimili og rekstur.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að hafna beiðninni með tilvísun í 9. grein Samþykktar um meðhöndlun úrgangs í Skagafirði, en þar kemur fram að fyrirtæki og bújarðir með atvinnustarfsemi skulu sjálf sjá um að koma rekstrarúrgangi í söfnunarstöð eða móttökustöð eða semja við sorphirðuaðila um leigu á sorpílátum og þjónustu við þau.
Sveinn Finster Úlfarsson vék af fundi undir þessum lið. Bókun fundar Sveinn Þ. Finster Úlfarsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Afgreiðsla 45. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 48. fundi sveitarstjórnar 22. apríl 2026 með átta atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 45 Fundargerð Norðurár bs. frá 16. mars 2026 lögð fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 45. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 48. fundi sveitarstjórnar 22. apríl 2026 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 45 Ársreikningur Fjallskilasjóðs Skarðshrepps fyrir árið 2025 lagður fram til kynningar Bókun fundar Afgreiðsla 45. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 48. fundi sveitarstjórnar 22. apríl 2026 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 45 Ársreikningur Fjallskilasjóðs Hegraness fyrir árið 2025 lagður fram til kynningar Bókun fundar Afgreiðsla 45. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 48. fundi sveitarstjórnar 22. apríl 2026 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 45 Ársreikningur Fjallskilasjóðs Hóla- og Viðvíkurdeilda fyrir árið 2025 lagður fram til kynningar Bókun fundar Afgreiðsla 45. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar var staðfest á 48. fundi sveitarstjórnar 22. apríl 2026 með níu atkvæðum.