Landbúnaðar- og innviðanefnd
Dagskrá
1.Fjallskilasamþykkt Skagafjarðar
Málsnúmer 2208249Vakta málsnúmer
2.Fráveita 2026 - Sauðárkrókur
Málsnúmer 2604051Vakta málsnúmer
Forstöðumaður framkvæmda Sigurður Arnar Friðriksson kynnir minnisblað vegna fráveitumála á og frá Nöfum, enda þekkt að vatn flæðir gjarnan niður klaufar og veldur óþægindum og jafnvel skaða. Í minnisblaðinu kemur fram að verið er að vinna að lausnum á fráveituvandanum í samvinnu við Stoð verkfræðistofu og stefnt er að ákveðnum úrbótum strax í sumar.
3.Ósk um stærri sorpílát
Málsnúmer 2603136Vakta málsnúmer
Lagður fram tölvupóstur dags. 27.03.2026. frá Maríu Ingiríði Reykdal með ósk um stærri sorpílát fyrir bæði heimili og rekstur.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að hafna beiðninni með tilvísun í 9. grein Samþykktar um meðhöndlun úrgangs í Skagafirði, en þar kemur fram að fyrirtæki og bújarðir með atvinnustarfsemi skulu sjálf sjá um að koma rekstrarúrgangi í söfnunarstöð eða móttökustöð eða semja við sorphirðuaðila um leigu á sorpílátum og þjónustu við þau.
Sveinn Finster Úlfarsson vék af fundi undir þessum lið.

4.Fundargerðir Norðurár bs. 2026
Málsnúmer 2601014Vakta málsnúmer
Fundargerð Norðurár bs. frá 16. mars 2026 lögð fram til kynningar.
5.Ársreikningur 2025 Skarðshr.
Málsnúmer 2603174Vakta málsnúmer
Ársreikningur Fjallskilasjóðs Skarðshrepps fyrir árið 2025 lagður fram til kynningar
6.Hegranes ársreikningur 2025
Málsnúmer 2603263Vakta málsnúmer
Ársreikningur Fjallskilasjóðs Hegraness fyrir árið 2025 lagður fram til kynningar
7.Ársreikningur Hóla- og Viðvíkurdeilda 2025
Málsnúmer 2603162Vakta málsnúmer
Ársreikningur Fjallskilasjóðs Hóla- og Viðvíkurdeilda fyrir árið 2025 lagður fram til kynningar
Fundi slitið - kl. 10:50.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir fjallskilasamþykktina með áorðnum breytingum samhljóða og vísar til sveitarstjórnar.