Byggingarnefnd menningarhúss á Sauðárkróki - 9
Málsnúmer 2604002F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 48. fundur - 22.04.2026
Fundargerð 9. fundar byggingarnefndar menningarhúss á Sauðárkróki frá 17. apríl 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 48. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð. Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir, Sveinn Þ. Finster Úlfarsson, Álfhildur Leifsdóttir, Einar E. Einarsson, Álfhildur Leifsdóttir, Hrefna Jóhannesdóttir, Guðlaugur Skúlason, Jóhanna Ey Harðardóttir, Einar E. Einarsson, Sveinn Þ. Finster Úlfarsson og Sigfús Ingi Sigfússon kvöddu sér hljóðs.
-
Byggingarnefnd menningarhúss á Sauðárkróki - 9 Hjörvar Halldórsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs, fór yfir aðaluppdrætti nýs menningarhúss og fjallaði um efnisval. Bókun fundar Fundargerð 9. fundar byggingarnefndar menningarhúss á Sauðárkróki var staðfest á 48. fundi sveitarstjórnar 22. apríl 2026 með sjö atkvæðum. Jóhanna Ey Harðardóttir og Sveinn Þ. Finster Úlfarsson, fulltrúar Byggðalista greiða atkvæði á móti.
-
Byggingarnefnd menningarhúss á Sauðárkróki - 9 Skráð í trúnaðarbók. Bókun fundar Fundargerð 9. fundar byggingarnefndar menningarhúss á Sauðárkróki var staðfest á 48. fundi sveitarstjórnar 22. apríl 2026 með sjö atkvæðum. Jóhanna Ey Harðardóttir og Sveinn Þ. Finster Úlfarsson, fulltrúar Byggðalista greiða atkvæði á móti.
-
Byggingarnefnd menningarhúss á Sauðárkróki - 9 Hjörvar Halldórsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs, fór yfir útboðsgögn jarðvinnu fyrir nýtt menningarhús á Sauðárkróki.
Byggingarnefnd menningarhúss samþykkir með fjórum atkvæðum fyrirliggjandi útboðsgögn og felur sviðsstjóra að láta auglýsa útboðið. Jóhanna Ey Harðardóttir greiðir atkvæði á móti.
Jóhanna Ey Harðardóttir, fulltrúi Byggðalistans óskar bókað:
"Mikilvægt er að vandað sé til verka í framkvæmdum á vegum sveitarfélags, hönnun, teikningar og kostnaðaráætlanir séu fullunnar áður en verkið er boðið út þannig að reynt sé eftir fremsta megni að koma í veg fyrir aukaverk og aðra þætti sem gætu valdið því að framkvæmdakostnaður verði meiri en áætlanir stóðu fyrir. Mikilvægt er að kjörnir fulltrúar sýni ábyrgð þegar kemur að forgangsröðun framkvæmda og ráðstöfun fjármagns sveitarfélagsins. Enn hefur ekki verið lögð fram kostnaðaráætlun vegna jarðvegsvinnu menningarhúss á Sauðárkróki. Að framangreindu tel ég óábyrgt að samþykkja útboð til jarðvinnu menningarhúss á Sauðárkróki."
Fulltrúar Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks ásamt VG og óháðra óska bókað:
"Fulltrúar Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og VG og óháðra vilja árétta að þetta er ákvörðun um að fara í útboð á jarðvegsvinnu vegna tilvonandi Menningarmiðstöðvar. Jafnframt liggur fyrir kostnaðaráætlun sem er birt fulltrúum í byggingarnefnd í trúnaði um þetta verk. Venjan er ekki sú að kjörnir fulltrúar hafi aðgang að síðustu kostnaðaráætlun verka en það er hins vegar gert í þessu tilfelli vegna umfangs verksins. Þegar niðurstaða úr útboði liggur fyrir er svo tekin ákvörðun um hvort viðkomandi tilboði sé tekið eða hafnað." Bókun fundar Fundargerð 9. fundar byggingarnefndar menningarhúss á Sauðárkróki var staðfest á 48. fundi sveitarstjórnar 22. apríl 2026 með sjö atkvæðum. Jóhanna Ey Harðardóttir og Sveinn Þ. Finster Úlfarsson, fulltrúar Byggðalista greiða atkvæði á móti.
Fulltrúar Byggðalista ítreka bókun sína frá fundinum, svohljóðandi:
"Mikilvægt er að vandað sé til verka í framkvæmdum á vegum sveitarfélags, hönnun, teikningar og kostnaðaráætlanir séu fullunnar áður en verkið er boðið út þannig að reynt sé eftir fremsta megni að koma í veg fyrir aukaverk og aðra þætti sem gætu valdið því að framkvæmdakostnaður verði meiri en áætlanir stóðu fyrir. Mikilvægt er að kjörnir fulltrúar sýni ábyrgð þegar kemur að forgangsröðun framkvæmda og ráðstöfun fjármagns sveitarfélagsins. Enn hefur ekki verið lögð fram kostnaðaráætlun vegna jarðvegsvinnu menningarhúss á Sauðárkróki. Að framangreindu tel ég óábyrgt að samþykkja útboð til jarðvinnu menningarhúss á Sauðárkróki."
Fulltrúar Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks ásamt VG og óháðra ítreka bókun sína frá fundinum, svohljóðandi:
"Fulltrúar Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og VG og óháðra vilja árétta að þetta er ákvörðun um að fara í útboð á jarðvegsvinnu vegna tilvonandi Menningarmiðstöðvar. Jafnframt liggur fyrir kostnaðaráætlun sem er birt fulltrúum í byggingarnefnd í trúnaði um þetta verk. Venjan er ekki sú að kjörnir fulltrúar hafi aðgang að síðustu kostnaðaráætlun verka en það er hins vegar gert í þessu tilfelli vegna umfangs verksins. Þegar niðurstaða úr útboði liggur fyrir er svo tekin ákvörðun um hvort viðkomandi tilboði sé tekið eða hafnað."