Atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar 568. mál - Stofnun atvinnuveganna. Umsagnir skal senda í gegnum umsagnagátt Alþingis. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 15. apríl nk.
Byggðarráð Skagafjarðar tekur eindregið undir umsögn Samtaka heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi og leggst gegn þeim hluta frumvarpsins sem miðar að því að fella niður hlutverk heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga á sviði matvælaeftirlits og færa það í heild til nýrrar Stofnunar atvinnuveganna. Þegar staðbundið, lögbundið og lýðræðislega tengt eftirlit sveitarfélaga er tekið út úr kerfinu og fært í heild til einnar ríkisstofnunar, veikjast þau tengsl sem eftirlitið hefur við nærsamfélag, staðbundna þekkingu, skjót viðbrögð og ábyrgð gagnvart íbúum. Frumvarpið felur í sér frekari samþjöppun þar sem allt matvælaeftirlit sem nú skiptist milli Matvælastofnunar og heilbrigðisnefnda er dregið inn í eina sameinaða atvinnuvegastofnun. Með því er stigið skref frá blönduðu eftirlitskerfi með staðbundinni aðkomu yfir í miðstýrt kerfi þar sem sveitarfélögin víkja að verulegu leyti af vettvangi matvælaeftirlits. Alþingi ætti fremur að styrkja samræmingu, leiðbeiningar, upplýsingamiðlun og gæðastýringu innan núverandi kerfis en að afnema með öllu aðkomu heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga. Núgildandi lög gera þegar ráð fyrir yfirumsjón, samræmingu, sameiginlegum fundum, leiðbeiningum og reglusetningu af hálfu Matvælastofnunar. Það er því fyllilega unnt að bæta framkvæmd og samræmi án þess að rjúfa þá verkaskiptingu sem þjónar bæði neytendavernd og staðbundinni ábyrgð.
Byggðarráð Skagafjarðar samþykkir samhljóða að leggja til að atvinnuveganefnd Alþingis hafni þeim efnisþætti frumvarpsins sem felur í sér niðurfellingu hlutverks heilbrigðisnefnda sveitarfélaga í matvælaeftirliti og samþykki í staðinn breytingu sem verndar áfram lögbundið hlutverk þeirra samkvæmt lögum um matvæli.