Stefna um opinbera þjónustu
Málsnúmer 2603290
Vakta málsnúmerByggðarráð Skagafjarðar - 188. fundur - 01.04.2026
Lagður fram tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 27. mars 2026, þar sem kynnt eru drög að stefnu um opinbera þjónustu, unnin af fjármála- og efnahagsráðuneytinu í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga. Þjónustustefnan tekur til þjónustu bæði ríkis og sveitarfélaga. Mikilvægi þess að samræma þjónustu þvert á stjórnsýslustigin er ein helsta áhersla stefnunnar með það að markmiði að veita betri, aðgengilegri og hagkvæmari þjónustu. Í stefnunni er horft á þjónustu hins opinbera á heildstæðan hátt. Stefnan mun því koma í stað stefnu hins opinbera um stafræna þjónustu sem kom út árið 2021 sem mun í kjölfarið falla úr gildi. Áfram er lögð áhersla á að stafræn samskipti séu helsta samskiptaleið hins opinbera við almenning en á sama tíma dregin fram nauðsyn þess að aðrar samskipaleiðir séu opnar. Næsta skref er að vinna aðgerðaáætlun sem á að fylgja stefnunni. Sambandið hvetur sveitarfélög til að senda Sambandinu ábendingar um stefnuna og ábendingar um mögulegar aðgerðir á netfangið samband@samband.is.